Fólk velti fyrir sér hvort kjarnorkusprengja hefði sprungið

slokkvilidsmenn_tianjin.jpg
Auglýsing

Meira en 50 manns eru látnir eftir tvær gríð­ar­lega stórar spreng­ingar í iðn­að­ar­hverfi í borg­inni Tianjin í Kína í gær. Meðal þeirra látnu eru 12 slökkiliðs­menn. Að minnsta kosti 700 eru slas­aðir þar af 71 alvar­lega, að sögn borg­ar­yf­ir­valda í Tianj­in. Slökkvi­liðið í Tianjin sakna enn 18 slökkvi­liðs­manna.

Spreng­ing­arnar voru svo stórar að þær sáust á gervi­tungla­myndum og þær sendu högg­bylgju um alla borg­ina svo rúður brotn­uðu í húsum í margra kíló­metra rad­í­us. Mynd­bönd af spreng­ing­unum sem gengu um netheima í nótt sýna risa­stóra eld­hnetti við spreng­ing­arn­ar. Þær voru jafn­framt nógu öfl­ugar til að mæl­ast á jarð­skjálfta­mæl­um, að sögn jarð­vís­inda­stof­unar Banda­ríkj­anna.

CHINA TIANJIN EXPLOSION Fjöl­margir eru slas­aðir eftir spreng­ing­arnar og eldana í Tianj­in. Margir urðu fyrir gler­brotum úr rúðum sem splundr­uð­ust við högg spreng­ing­anna. (Mynd: EPA)

Auglýsing

 

 

Tianjin er fjórða stærsta borg Kína en þar er stærsta mann­gerða höfn í Kína, fimmta stærsta í heimi sé miðað við umfang þess sem þar fer í gegn. Spreng­ingin varð á geymslu­svæði hafn­ar­innar og flugu flutn­ingagámar um eins og eld­spítu­stokk­ar, nýir bílar á leið til vænt­an­legra kaup­enda brunnu og geymslu­rými brunnu til kaldra kola. Meðal þess sem hefur orðið eld­inum og spreng­ing­unum að bráð eru sprengi­efni, ýmis­konar eit­ur­efni og annað hættu­legt heilsu fólks.

„Ég hélt fyrst að þetta hefði verið jarð­skjálft­i,“ sagði Guan Xiang, sem býr sjö kíló­metrum frá spreng­ing­unum í Tianj­in. Hann sagð­ist svo hafa séð sveppa­ský stíga til him­ins fyrir ofan eld­tung­urnar og spurt sig hvort kjarn­orku­sprengja hafi sprung­ið. Stærð fyrstu spreng­ing­ar­innar var á við þrjú tonn af TNT en sú seinni mun stærri eða á við 21 tonn af TNT.

CHINA TIANJIN EXPLOSION Gríð­ar­legt magn nýrra bíla sem biðu flutn­ings um allan heim brunnu til kaldra kola á hafn­ar­bakk­anum í Tianjin eftir spreng­ing­arn­ar. (Mynd: EPA)

 

Orsök spreng­ing­anna er talin vera eldur sem varð í nokkrum flutn­ingagámum, að sögn frétta­stof­unnar Xin­hua. Hins vegar er ekki hægt að full­yrða um orsök­ina. Í kjöl­far spreng­ing­anna hafa eldar læst sig í mann­virki og vörur á mun stærra svæði. Vegna þess hversu hratt vörur fara í gegnum svæðið er erfitt að áætla hvar mesta hættan er. Þá er einnig hættu­legt að nálg­ast eldana vegna sprengi­hættu. Slökkvi­liðs­menn berj­ast enn við elda á fjórum stöðum við höfn­ina í Tianj­in.

Slys í tengslum við aukna fram­leiðslu og vöru­flutn­inga Kín­verja hafa orðið æ oftar und­an­farin ár, í takt við gríð­ar­lega hraðan vöxt kíversks efna­hags­lífs.

Gríð­ar­leg eyði­legg­ing



https://www.youtu­be.com/watch?v=XZa48XG7NNM

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None