Foreldrar upplýsi börn um fjármál heimilisins

mani-mar.jpg
Auglýsing

Börn verða mót­tæki­leg fyrir fræðslu um fjár­mál heim­il­is­ins þegar þau ná fimm til sex ára aldri. Eftir því sem þau eldast, allt fram á ung­lings­ár­in, má auka fræðsl­una og veita ítar­legri upp­lýs­ingar um fjár­mál heim­il­is­ins. Slík fræðsla, þar sem for­eldrar upp­lýsa börnin sín um hvað hlut­irnir kosta og hvað það kostar að reka heim­ili með til­heyr­andi útgjöld­um, getur verið afar verð­mæt lexía síðar á lífs­leið­inni. Þetta segir Ron Lieber, pistla­höf­undur New York Times, í grein sem ber yfir­skrift­ina: Afhverju þú ættir að segja börn­unum þínum hvað þú ert með í laun.

Í grein­inni ræðir Lieber við nokkurn fjölda fólks um þeirra  per­sónu­lega upp­lifun og hvernig þau nálg­ast heim­il­is­fjár­málin í sam­tölum við börnin sín. Hann telur best að fræðsla um heim­il­is­bók­haldið byrji snemma. Vissu­lega eigi börn ekki rétt á, né hafi skiln­ing til, að vita allt en byrja megi snemma að útskýra fyrir þeim kostn­að­inn við ýmis­legt og byggja á þeirri fræðslu. Eftir því sem þau eld­ast eykst skiln­ing­ur­inn og vit­neskja þeirra um fjár­hag heim­il­is­ins á að hald­ast í hendur við það, að mati Lieber.

Auglýsing


Þessar kenn­ingar Lieber ríma ágæt­lega við þætt­ina Ferð til fjár á RÚV. Áhorf­endur þátt­anna hafa fylgst með Mána Mar, þrettán ára Hafn­firð­ingi sem tók yfir heim­il­is­bók­hald heim­il­is­ins. Máni Mar er fjár­mála­stjóri fjöl­skyld­unnar og þannig með yfir­sýn yfir öll útgjöld heim­il­is­ins, greiðir reikn­inga og sér til þess að útgjöldin við mat­ar­inn­kaup og allt annað séu í takt við áætl­an­ir. Enn á eftir að koma í ljós hvernig hon­um ­gengur að halda um útgjöldin en til þessa hefur hann ­staðið sig með prýði og á tímum verið harður fjár­mála­stjóri for­eldra sinna.

Sturt­aði pen­inga­seðlum á borðið

Börnum þykir pen­ingar oft hul­inn ráð­gáta, segir Lieber. „Þau skynja mátt pen­inga og spyrja þess vegna spurn­inga, margra spurn­inga yfir fjölda ára. Afhverju er húsið okkar minna en Jóns frænda? Afhverju má ég ekki byggja gróð­ur­hús fyrir mannætu­plönt­ur? Afhverju ætti ég að virða kennar­ann minn ef hann er með svona lág laun (al­vöru spurn­ing!). Erum við fátæk? Afhverju má ég ekki fá hitt og þetta,“ skrifar Lieber þegar hann tekur dæmi um spurn­ingar barna sem tengj­ast pen­ing­um. Að hans mati eru for­eldrar almennt lélegir í að svara spurn­ingum sem þessum, bægja þeim frá í stað þess fræða börnin og spyrja á móti: Hvers vegna spyrðu?



Einn við­mæl­anda í grein­inni, Daniel Park­er, rifjar upp þegar faðir hans kom eitt sinn heim með poka fullan af pen­ingum fyrir um tutt­ugu árum síð­an. Faðir hans hafði þá farið í bank­ann og beðið gjald­ker­ann um að láta sig hafa jafn­virði mán­að­ar­launa í eins doll­ara-­seðl­um. Með dramat­ískum hætti útskýrði hann síðan fyrir krökk­unum sínum hversu mikið færi í skatta, mat­ar­inn­kaup, æfinga­gjöld og ýmis önnur útgjöld heim­il­is­ins.



Aðrar til­þrifa­minni aðferðir eru einnig nefndar í grein­inni. Rætt er við Trishu Jones, móður sex og átta ára barna sem ganga í einka­skóla. Hún hefur útskýrt fyrir þeim hvernig einn dagur í skól­anum kosti um 90 doll­ara eða tólf þús­und krón­ur. Það jafn­gildi flottum pakka af Lego-kubbum á hverjum degi. „Það eru for­rétt­indi að ganga í skól­ann og við viljum að þau viti að við erum að færa fórnir fyrir þau,“ segir Jones.



Grein­ina í NY Times má lesa í heild hér.



Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 5. febr­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferðar til fjár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None