Forstjóri Bankasýslu: Betra ef Borgun hefði verið seld í opnu ferli

j.n.gunnar.j.nsson_.jpg
Auglýsing

Banka­sýsla rík­is­ins hefur rætt við Lands­bank­ann vegna sölu hans á tæp­lega þriðj­ungs­hlut í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun en hefur ekk­ert aðhafst frekar í mál­inu. Stofn­unin hefur engin áform um að grípa til neinna frek­ari aðgerða vegna söl­unn­ar. Þetta segir Jón Gunnar Jóns­son, for­stjóri Banka­sýsl­unn­ar, í sam­tali við Kjarn­ann.

Hann segir að það hefði verið betra en hlut­ur­inn í Borgun hefði farið í opið sölu­ferli í stað þess að vera seldur til valdra aðila bak­við lukta dyr, án þess að öðrum áhuga­sömum hefði gef­ist tæki­færi til að bjóða í hlut­inn.

Kjarn­inn greindi frá því í gær að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefði svarað fyr­ir­spurn á Alþingi um söl­una á hlutnum í Borgun með þeim hætti að það væri Banka­sýsl­unnar að svara fyrir hvort sölu­ferlið sam­rýmd­ist eig­enda­stefnu rík­is­ins. Því hefði ekki farið fram nein athugun á söl­unni innan ráðu­neyt­is­ins.

Auglýsing

Banka­sýsla rík­is­ins fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Hlut­verk hennar er meðal ann­ars að „ leggja áherslu á end­ur­reisn og upp­bygg­ingu öfl­ugs inn­lends fjár­mála­mark­aðar og stuðla að virkri og eðli­legri sam­keppni á þeim mark­aði, tryggja gagn­sæi í allri ákvarð­ana­töku varð­andi þátt­töku rík­is­ins í fjár­mála­starf­semi og tryggja virka upp­lýs­inga­miðlun til almenn­ings".

Valin verstu við­skipti árs­ins



Lands­bank­inn, sem er í 98 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins, seldi 31,2 pró­sent hlut í Borgun á tæp­lega 2,2 millj­arða króna í nóv­em­ber síð­ast­liðn­um. Kaup­and­inn var Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun Slf. Ekk­ert form­legt sölu­ferli fór fram áður en félagið var selt heldur var ferlið þannig að Magnús Magn­ús­son, sem fór fyrir félag­inu, setti sig í sam­band við bank­ann og sýndi áhuga á kaup­un­um. Í kjöl­farið var gengið frá þeim.

Salan, og ógagn­sæið í kringum hana, hefur verið harð­lega gagn­rýnd, meðal ann­ars af stjórn­mála­mönn­um. Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, hefur meðal ann­ars þurft að mæta á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar til að útskýra söl­una. Þá eru margir innan við­skipta­lífs­ins þeirrar skoð­unar að allt of lágt verð hafi verið greitt fyrir hlut­inn. Salan á Borgun var valin sem verstu við­skipti árs­ins 2014 hjá Mark­aðn­um, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um við­skipti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None