Forsvarmenn SI: Það vantar sárlega meiri erlenda fjárfestingu

4469889-penge.jpg
Auglýsing

„Lyk­il­at­riðið er þetta: Það vantar sár­lega meiri erlenda fjár­fest­ingu á Íslandi. Hún hefur og á að byggj­ast upp á okkar styrk­leik­um, t.d. hvað varðar orku­mál, mannauð og fjöl­breytni starfa. Það er einnig mik­il­vægt að hér bygg­ist upp fjöl­breyttur iðn­aður þannig að atvinnu­líf og hag­vöxtur byggi á fleiri stoð­um. Ísland hefur marga kosti þegar kemur að því að laða erlenda fjár­festa til lands­ins. En það er líka margt sem vinnur gegn okk­ur. Eitt af því er að starf­semi alþjóð­legra fyr­ir­tækja á Íslandi  sé gerð tor­tryggi­leg.“

Þetta segja Almar Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðn­aðn­ar­ins (SI), og Bjarni Gylfa­son, hag­fræð­ingur sam­tak­anna, í sam­eig­in­legri grein á vef SI. Í grein­inni kemur fram að nauð­syn­legt sé að styrkja sam­keppn­is­hæfni Íslands, meðal ann­ars með reglu­verki sem laðar til sín fyr­ir­tæki sem hér geta sett metn­að­ar­fulla starf­semi.

Vitna þeir meðal ann­ars til umræðu sem spunn­ist hefur um sam­keppn­is­hæfni Íslands, þegar kemur að gagna­verum, í kjöl­far þess að Apple ákveðið að reisa gagn­var í Dan­mörku og á Írlandi, frekar en að horfa hingað til lands.

Auglýsing

„Nokkur umræða hefur verið und­an­farið um sam­keppn­is­stöðu Íslands hvað varðar upp­bygg­ingu gagna­vera, m.a. tengt ákvörðun Apple um að stað­setja gagna­ver í Dan­mörku. Slíkur iðn­aður er mikið tæki­færi fyrir Ísland enda eru skil­yrði hér varð­andi orku­mál og mannauð hag­stæð, en með skýr­ari skatta­lög­gjöf væri sam­keppn­is­hæfnin meiri. Eðli­lega sögðu margir að Ísland hefði misst af stór­kost­legu tæki­færi til að laða hingað erlent fjár­magn. En á sama tíma voru sett spurn­inga­merki við alþjóð­leg fyr­ir­tæki sem hér starfa og fara eftir lögum og samn­ingum við rík­ið. Það er óneit­an­lega sér­stakt,“ segja Almar og Bjarni í grein sinni, og vísa meðal ann­ars í umræðu um hvernig alþjóð­leg álfyr­ir­tæki haga sínum mál­um.

Grein þeirra félaga má lesa hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None