Forsvarsmenn Eplis báðu forsætisráðherra um aðstoð við að koma á fundi með Apple

10016383485_15e5251efe_z.jpg
Auglýsing

Full­yrð­ingar Bjarna Áka­son­ar, fram­kvæmda­stjóra Eplis, um að for­sæt­is­ráðu­neytið hafi mis­skilið erindi fyr­ir­tæk­is­ins varð­andi mögu­legt gagna­ver Apple á Íslandi, í frétt sem birt­ist á vef Kjarn­ans fyrir skömmu, virð­ast ekki eiga við rök að styðj­ast. Þar full­yrti hann að fyr­ir­tækið hafi ein­ungis viljað kanna áhuga íslenskra stjórn­valda á að hitta Apple með mögu­leg gagna­ver á Íslandi í huga.

Frétta­stofa RÚV birti í sjón­varps­fréttum klukkan tíu í gær­kvöldi það sem að því er virt­ist vera erindið sem for­svars­menn ­Eplis sendu á for­sæt­is­ráð­herra í mars. Kjarn­inn skrif­aði upp úr því og birti í áður­nefndri frétt.

Bjarni Áka­son vildi ekki afhenda Kjarn­anum umrætt erindi þegar eftir því var leit­að, en for­sæt­is­ráðu­neytið varð við ósk Kjarn­ans og hefur afhent erind­ið. Í því er að finna máls­grein sem ekki kom fyrir í bréf­inu sem frétta­stofa RÚV birti í gær­kvöldi, og yfir­lýs­ing for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í dag snérist um.

Auglýsing

Hér fyrir neðan má lesa erindi Eplis til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, sem sent var í mars mán­uði síð­ast­lið­inn, en undir það ritar Ólafur Sóli­mann á fyr­ir­tækja­sviði Eplis. (Máls­greinin sem ekki var að finna í frétt RÚV er feit­letr­uð).

Góðan dag.

Núna vinnur fyr­ir­tækið Emer­ald Networks að lagn­ingu sæstrengs sem mun sjá um gagna­flutn­ing á milli Banda­ríkj­anna við Evr­ópu með við­komu hér á landi. Sæstreng­ur­inn sem ber heitið Emer­ald Express mun verða afkasta­mesta og hrað­asta teng­ingin á milli N- Amer­íku og Evr­ópu fyrir gagna­flutn­ing.

Þar með öðl­ast Ísland algjöra sér­stöðu varð­andi stað­setn­ingum fyrir gagna­ver og ekki síst vegna þeirrar grænu orku og fram­boði hennar sem er í boði hér­lend­is.

Stór­fyr­ir­tæki í tölvu- og tækni­geir­anum eru að horfa hingað til lands í auknum mæli í leit að væn­legum kostum fyrir stækk­andi gagna­þörf. 

Apple Inc. er annt um að vera fyr­ir­tæki sem setur umhverfið í for­gang og leggur sig fram við að finna umhverf­is­væn­ari leiðir í rekstri. Ísland er því full­komin sam­starfs­að­illi fyrir stofnun á gagna­verum með umhverf­is­væna orku­gjafa.

Um nokk­urt skeið höfum við verið að benda for­svars­mönnum Apple á kosti þess að skoða Ísland sem væn­legan kost fyrir gagna­ver en einn helsti ókost­ur­inn hefur alltaf verið skortur á sæstreng til N-Am­er­íku. Nú er orðið ljóst að sú hindrun verður ekki til staðar mikið lengur og höfum við því kom­ist lengra með þessar við­ræð­ur. 

Okkur langar að leita til for­sæt­is­ráð­herra eftir aðstoð við að koma á fundi við ráða­menn Apple í Banda­ríkj­unum til að vekja áhuga þeirra á að reisa gagna­ver á Íslandi. Við erum í sam­bandi við fólk í höf­uð­stöðvum Apple sem er reiðu­búið til að koma á fundi ef hæst­virtum for­sæt­is­ráð­herra hugn­ast að heim­sækja höf­uð­stöðv­arnar í Cupertino í Kali­forn­íu.

Það er aug­ljóst að stóru tæknirisarnir munu koma til með að reisa gagna­ver á Íslandi og þar með auka það for­skot sem Ísland hefur nú þegar öðl­ast með fram­úr­skar­andi mannauð og þekk­ingu á þessu sviði.

Hugs­an­lega getur þessi fundur átt sam­leið með öðrum erindum for­sæt­is­ráð­herra til Banda­ríkj­anna. Einnig væri upp­lagt að taka til umræðu á slíkum fundi mik­il­vægi þjóð­tung­unnar í tækni­ver­öld­inni fyrir smá­þjóðir á borð við Ísland, sér­stöðu lands­ins sem til­rauna­mark­aðs sem og gríð­ar­lega grósku í hug­bún­að­ar­þró­un.  

Með von um góðar við­tök­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None