Frakkar og Þjóðverjar leggja stein í götu David Cameron

h_51726274.jpg
Auglýsing

Frakkar og Þjóð­verjar hafa gert með sér sam­komu­lag sem miðar að enn þétt­ara stjórn­mála­sam­band­i á evru­svæð­inu án þess að ráð­ist verði í breyt­ingar á sátt­málum Evr­ópu­sam­bands­ins. Þetta er áfall fyrir David Camer­on, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sem vill reyna að ná fram breyt­ingum á sátt­mál­unum fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi veru í sam­band­inu, sem hann hefur lofað bresku þjóð­inni.

Guar­dian hefur eftir franska blað­inu Le Monde að Frakkar og Þjóð­verjar muni leggja fram sínar breyt­inga­til­lögur fyrir leið­toga­fund í Brus­sel í júní, en á sama fundi ætli Cameron að kynna lista sinn yfir breyt­ingar sem hann krefst fyrir hönd Breta.  Cameron hefur ítrekað talað fyrir því að sátt­málar ESB verði teknir til end­ur­skoð­un­ar, þannig að evru­svæðið geti þétt sínar raðir en Bretar geti breytt sínu sam­bandi við ESB. Búist er við því að til­lögur Frakka og Þjóð­verja verði sam­þykktar á leið­toga­fund­in­um, og það muni loka algjör­lega á til­raunir Cameron til að fá sátt­mála tekna upp.

David Cameron er á leið til funda við bæði frönsk og þýsk stjórn­völd í lok vik­unn­ar. Hann er nú kom­inn í kosn­inga­bar­áttu fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una sem hann hefur lofað að halda. Í gær­kvöldi tók hann á móti for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, Jean-Claude Juncker. Að sögn tals­manns for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins ræddu þeir þessi mál og Juncker hafi sagst vilja finna sann­gjarna lausn fyrir Breta.

Auglýsing

Á fimmtu­dag heldur hann til meg­in­lands­ins og mun hitta for­sæt­is­ráð­herra Dan­merk­ur, Hollands og Frakk­lands. Á föstu­dag ætlar hann að funda með for­sæt­is­ráð­herra Pól­lands áður en hann fundar með kansl­ara Þýska­lands. Hann stefnir að því að hitta leið­toga allra Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna áður en að leið­toga­fund­inum kemur í lok júní.

Í milli­tíð­inni verður drottn­ing­ar­ræða for­sæt­is­ráð­herr­ans flutt og búist er við því að útskýrt verði fyrir bresku þjóð­inni hvernig þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan fari fram og hvernig verði spurt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None