Framlag EVE Online spilara til Nepal hærra en íslenskra stjórnvalda

EVE.Online..Mining.jpg
Auglýsing

Spil­arar EVE Online tölvu­leiks­ins veita hærri fjár­hags­að­stoð til Rauða Kross Íslands vegna jarð­skjálft­ans í Nepal heldur en íslensk stjórn­völd veita. Rauða kross­inum verður í dag veittar sam­tals 13,8 millj­ónir króna sem söfn­uð­ust frá spil­urum EVE Online. Fram­lag íslenskra stjórn­valda nemur tíu millj­ónum króna en fram­lögin tvö eru stærstu ein­stöku fram­lögin í söfnun Rauða kross­ins.

Starfs­fólk CCP mun fyrir hönd spil­ara afhenda Rauða kross­inum upp­hæð­ina í dag við lista­verkið Heimar í heimi sem stendur við höf­uð­stöðvar CCP.

Auglýsing


Fram kemur í til­kynn­ingu frá CCP að söfn­unin fór alfarið fram í leiknum sjálfum og rennur féð óskipt til Rauða Kross­ins á Íslandi, sem enn stendur fyrir víð­tækri söfnun fyrir hjálp­ar­starfi í Nepal.



Söfnin fór þannig fram að spil­arar EVE Online létu fé af hendi rakna til hjálp­ar­stafs­ins í Nepal með gjald­miðl­inum PLEX (Pilot Licence Extension), sem er annar af tveim gjald­miðlum EVE heims­ins sem spil­arar leiks­ins nota (hinn ber nafnið ISK). Raun­virði hvers PLEX er um 15 banda­ríkja­doll­arar og sér CCP um að koma því fé sem spil­arar leiks­ins safna yfir í banda­ríkja­doll­ara og síðan til Rauði kross­ins á Íslandi, sem stendur fyrir neyð­ar­að­stoð í Nepal og styður alþjóð­legt hjálp­ar­starf á svæð­inu.



Þetta er í sjötta sinn sem CCP í sam­starfi við spil­ara EVE Online ýtir úr vör söfn­unar­átaki til mann­úð­ar­mála undir slag­orð­inu PLEX for Good. Áður hafa spil­arar leiks­ins stutt við fórn­ar­lömb flóða í Pakistan, jarð­skjálft­ana á Haí­tí, felli­byls­ins Katr­ina í Banda­ríkj­un­um, jarð­skjálfta og flóða í Japan og felli­byls­ins sem skók Fil­ips­eyjar fyrir tveimur árum um alls 45 millj­ónir króna (­yfir 340.000 banda­ríkja­dala). Met var slegið í síð­ustu söfnun fyrir íbúa Fil­ips­eyjar þegar rúm­lega 22 millj­ónir króna söfn­uð­ust. Að með­töldu fram­lag­inu til Nepal hafa spil­ara leiks­ins því safnað og gefið hátt í 60 millj­ónir til mann­úð­ar­stafa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None