Framleiðandi Beck's borgar bætur fyrir að halda því ranglega fram að bjórinn sé þýskur

h_99296367-1.jpg
Auglýsing

Fram­leið­andi Beck's bjórs­ins í Banda­ríkj­unum hefur sam­þykkt að greiða við­skipta­vinum sínum þar í landi skaða­bæt­ur, fyrir að full­yrða rang­lega að bjór­inn komi frá Þýska­landi. Wall Street Journal greinir frá mál­inu. Bjór­inn sem seldur er í Banda­ríkj­unum undir merkjum Beck's er ekki lengur brugg­aður í Þýska­landi heldur í St Louis í Mis­so­uri ríki.

Aðdá­endur Beck's bjórs­ins geta sótt allt að fimm­tíu doll­ara end­ur­greiðslu frá fram­leið­and­an­um, ef þeir stað­hæfa að þeir hafi keypt bjór­inn í góðri trú um að hann væri þýskur á árunum 2011, gegn fram­vísun á kvitt­un­um.

„Skaða­bæt­urn­ar“ má rekja til hóp­mál­sóknar á hendur Anheuser-Busch InBev bjór­fram­leið­and­an­um, sem sak­aður var um að gabba fólk til að kaupa bjór­inn með því að full­yrða að hann væri þýsk­ur. Auk bót­anna greiðir bjór­fram­leið­and­inn 3,5 millj­ónir banda­ríkja­dala til lög­fræð­inga sem héldu úti hóp­máls­sókn­inni.

Auglýsing

En mis­skiln­ing­ur­inn er skilj­an­legur í ljósi þess að Beck's í Banda­ríkj­unum var einu sinni inn­fluttur frá Þýska­landi. Bruggverk­smiðj­an, sem var fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki til árs­ins 2002, þegar hún var seld til belgíska félags­ins Inter­brew. Það félag rann saman við brasil­ískt félag, AmBev, og varð InBev. Það félag keypti svo Anheuser-Busch og flutti fram­leiðslu Beck's til St. Louis árið 2012.

Stefna máls­ins byggði meðal ann­ars á slag­orðum sem birt­ist á pakkn­ingum Beck's bjórs­ins, eins og „Þýskur gæða­bjór“ og „Frá Brem­en, í Þýska­land­i.“ Mark­aðs­setn­ingin þótti gefa ranga mynd af hvar bjór­inn væri í raun fram­leidd­ur. Hin meintu brot voru talin varða við banda­ríska neyt­enda­lög­gjöf.

Við­skipta­vinir Beck's geta kraf­ist end­ur­greiðslu sem nemur tíu sentum af hverri keyptri stakri flösku frá því í maí­mán­uði árið 2011. Þá geta þeir fengið 50 sent fyrir hverja keypta kippu og hátt í tvo dali fyrir 20 bjóra pakkn­ingu.

Bæt­urnar geta ekki orðið hærri en 50 dal­ir, og þeir sem geta ekki fram­vísað kvitt­unum geta mest fengið 12 banda­ríkja­dali í skaða­bætur fyrir að hafa verið narraðir til að kaupa Beck's bjór með ósann­ind­um. Þá var bjór­fram­leið­and­inn skyld­aður til að merkja skil­merki­lega pakkn­ingar sínar með: „Made in Amer­ica.“

Þetta er annað málið sem Anheuser-Busch neyð­ist til að semja um utan dóm­stóla. Á síð­asta ári fékk félagið á sig sam­bæri­lega hóp­máls­sókn í tengslum við mark­aðs­setn­ingu bjór­fram­leið­and­ans á Kirin bjór, þar sem fyr­ir­tækið var sakað um að halda því rang­lega fram að bjór­inn væri fram­leiddur í Jap­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None