Framsókn ekki mælst með meira fylgi í átta ár og andar ofan í hálsmál Sjálfstæðisflokks

Þrír stjórnarandstöðuflokkar hafa bætt við sig fylgi frá síðustu kosningum en Framsókn er eini stjórnarflokkurinn sem mælist með aukinn stuðning.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Auglýsing

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast sam­tals með 50,5 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup. Það er tæpum fjórum pró­sentu­stigum minna fylgi en þeir fengu í kosn­ing­unum í sept­em­ber þegar 54,3 pró­sent atkvæða fóru til Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks eða Vinstri grænna. 

Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn hafa bæði tapað fylgi frá kosn­ingum en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur bætt við sig. Nú segj­ast 21,9 pró­sent lands­manna styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem er 2,5 pró­sentu­stigum minna fylgi en hann fékk í sept­em­ber og 0,5 pró­sentu­stigi minna en fylgið sem flokk­ur­inn mæld­ist með í jan­ú­ar. Vinstri græn dala lít­il­lega á milli mán­aða og mæl­ast nú með 10,5 pró­sent, sem er 2,1 pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi. Fram­sókn mælist hins vegar með 18,1 pró­sent fylgi, sem er mesta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með í könn­unum Gallup síðan í des­em­ber 2014, þegar hann sat í rík­is­stjórn undir for­sæti þáver­andi for­manns, Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 0,8 pró­sentu­stigum meira fylgi en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum og er nú ein­ungis 3,8 pró­sentu­stigum minni en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

Auglýsing
Á meðal stjórn­ar­and­stöðu­flokka er mest sigl­ing á Píröt­um. Þeir mæl­ast nú með 13,2 pró­sent fylgi og eru þriðji stærsti flokkur lands­ins. Það er 0,7 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn mæld­ist með í jan­úar og 4,6 pró­sentu­stigum meira en hann fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber í fyrra. Eng­inn flokkur hefur bætt við sig meira fylgi á kjör­tíma­bil­inu miðað við stöðu mála í könn­unum Gallup. 

Sam­fylk­ingin mælist á svip­uðu slóðum nú og í jan­úar með 11,1 pró­sent fylgi, sem er 1,2 pró­sentu­stigum yfir kjör­fylgi. Þá segj­ast alls 9,7 pró­sent að þeir ætli að kjósa Við­reisn sem er 1,4 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum í fyrra­haust. 

Hinir tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arn­ir, Flokkur Fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn, hafa báðir dalað síð­ast kosið var síð­ast. Flokkur fólks­ins mælist nú með 7,5 pró­sent fylgi, 1,4 pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi, og Mið­flokk­ur­inn nýtur stuðn­ings 3,9 pró­sent lands­manna, sem er 1,6 pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu kosn­ing­um.

Níundi flokk­ur­inn sem mælist með fylgi er Sós­í­alista­flokkur Íslands, en 3,9 pró­sent lands­manna segj­ast styðja hann. 

Auglýsing

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dalar milli mán­aða og mælist nú 58 pró­sent. Nið­ur­stöður um fylgi flokka á lands­vísu eru úr net­könnun sem Gallup gerði dag­anna 1. til 28. febr­úar 2022. Heild­ar­úr­taks­stærð var 9.672 og þátt­töku­hlut­fall var 49,7 pró­sent. Vik­mörk við fylgi flokk­anna eru 0,6 til 1,3 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent