Fyrir 2,4 milljónir er hægt að kaupa fjölmiðlaráðgjöf í 133 klukkustundir

15267454341_3ba0e4f707_z.jpg
Auglýsing

Eins og Kjarn­inn greindi fyrstur fjöl­miðla frá í gær, greiddi inn­an­rík­is­ráðu­neytið tæpar 2,4 millj­ónir króna til ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Argus fyrir sér­tæka fjöl­miðla­ráð­gjöf vegna Leka­máls­ins á síð­asta ári. Sam­kvæmt eft­ir­grennslan Kjarn­ans kostar útseldur klukku­tími fyrir fjöl­miðla­ráð­gjöf um átján þús­und krónur að jafn­aði.

Það þýðir að inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur keypt 133 klukku­stunda vinnu af sér­stökum fjöl­miðla­ráð­gjafa vegna Leka­máls­ins, sé miðað við áður­nefnt með­al­verð. Það gerir tæp­lega sautján heila vinnu­daga, sé miðað við átta klukku­stunda vinnu­dag og ríf­lega þriggja vikna vinnu í beit.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er ekki óal­gengt að fjöl­miðla­ráð­gjafar veiti afslátt þegar um svo mikla vinnu er að ræða, þannig að mögu­lega hafa klukku­tím­arnir verið fleiri.

Auglýsing

Kjarn­inn sendi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn til að for­vitn­ast um á hvaða tíma­bilum umrædd fjöl­miðla­ráð­gjöf var veitt Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, á síð­asta ári. Nánar til­tekið óskaði Kjarn­inn eftir upp­lýs­ingum um hvaða daga ráð­gjöfin var veitt ráð­herra. Í skrif­legu svari Jóhann­esar Tóm­as­son­ar, upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins, kemur fram að ekki sé hægt að svara fyr­ir­spurn Kjarn­ans að öllu leyti, en „reikn­ingar frá Argus vegna ráð­gjafar dreifast yfir mik­inn hluta árs­ins 2014.“

Stein­grímur Sæv­arr Ólafs­son, fyrr­ver­andi frétta­stjóri Stöðvar 2 og Pressunn­ar, var á meðal þeirra sem veitti inn­an­rík­is­ráð­herra fjöl­miðla­ráð­gjöf fyrir hönd Argus. Á sama tíma hafði Hanna Birna tvo aðstoð­ar­menn og aðgang að yfir 20 lög­mönnum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None