Fyrrum hluthafar Landsbankans ætla að stefna Björgólfi Thor á næstu vikum

btb.2.000.jpg
Auglýsing

Hópur fyrrum hlut­hafa gamla Lands­bank­ans er búinn að stofna hóp­mál­sókn­ar­fé­lag og ætlar að stefna ­Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, fyrrum aðal­eig­anda bank­ans, fyrir að dylja raun­veru­legt eign­ar­hald sitt í bank­anum svo hann þyrfti ekki að upp­lýsa um stór­tæk lána­við­skipti sín við hann og fyrir að bregð­ast ekki við þegar yfir­töku­skylda á bank­anum mynd­að­ist á árinu 2006. Stefna í mál­inu er til­búin og búist er við því að Björgólfi Thor verði stefnt á næstu vik­um. Í mál­inu verður ekki sóst eftir sér­stökum bótum heldur verður látið reyna á hvort bóta­skylda sé fyrir hendi. Reyn­ist hún vera fyrir hendi verður reynt að finna út hvert mögu­legt tjón hlut­haf­anna var. Þetta kom fram í Kast­ljósi kvölds­ins.

Björgólfur Thor hafnar ásök­unum hóps­ins.

Margra ára aðdrag­andi



Und­ir­bún­ingur máls­höfð­un­ar­innar hefur staðið frá árinu 2011 þegar heil­síðu­aug­lýs­ingar birt­ust í íslenskum dag­blöðum þar sem skorað var á hlut­hafa í gamla Lands­bank­anum að taka þátt í mögu­legri hóp­mál­sókn gegn Björgólfi Thor. Á meðal þeirra sem stóðu að und­ir­bún­ingnum var Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og lög­mað­ur­inn Ólafur Krist­ins­son. Síðan þá hefur und­ir­bún­ingur máls­höfð­un­ar­innar staðið yfir og hóp­ur­inn hefur meðal ann­ars höfðað vitna­mál á hendur Björgólfi Thor og sam­starfs­manni hans til að nálg­ast ákveðnar upp­lýs­ing­ar. Auk þess hefur hóp­ur­inn fengið gögn frá slita­stjórn gamla Lands­bank­ans við und­ir­bún­ing­inn.

Í Kast­ljósi kom fram að málið hafi verið kynnt fyrir þeim líf­eyr­is­sjóðum sem áttu hlut í Lands­bank­anum á árunum 2005 til 2008 og að þeir séu að skoða þátt­töku í mál­sókn­inni. Alls voru hlut­hafar í gamla Lands­bank­anum um 25 þús­und tals­ins þegar hann féll haustið 2008.

Auglýsing

Yfir­töku­skylda og of há lán



Í umfjöllun Kast­ljós kom meðal ann­ars fram að hóp­ur­inn telji að Björgólfur Thor hafi með skipu­legum hætti, og með þátt­töku starfs­manna sinna, unnið að því að koma í veg fyrir að upp­lýs­ingar um umfang lán­veit­inga bank­ans til Björg­ólfs Thors. birt­ust opin­ber­lega. Þetta hafi verið gert með því að dylja hversu stóran hlut Björgólfur Thor hafi raun­veru­lega átt í bank­an­um.

Í stefn­unni í mál­inu kemur fram að lán Lands­bank­ans til Björg­ólfs Thor hafi verið langt umfram heim­ildir á árinu 2005 og að á árinu 2006 hafi eign­ar­hald Lands­bank­ans þjapp­ast það mikið saman að það hafi mynd­ast yfir­töku­skylda á Björgólf Thor, sem hann hafi huns­að. Með því hafi hann brugð­ist þeirri skyldu sinni að vernda lög­bundin rétt­indi minni hlut­hafa í bank­an­um.

Við­bót klukkan 21:02



Yfir­lýs­ing frá Ragn­hildi Sverr­is­dótt­ur, tals­manni Björg­ólfs Thors:

"Vil­hjálmur Bjarna­son og félagar hafa byggt álykt­anir sínar um meintar blekk­ingar á þeirri stað­reynd, að sam­starfs­menn Björg­ólfs Thors áttu lít­inn hlut í  fé­lagi, sem aftur átti hlut í Lands­bank­an­um. Slíkt ­eign­ar­hald var og er full­kom­lega eðli­legt og allar upp­lýs­ingar um það lágu fyrir á hverjum tíma hjá Lands­bank­anum og Fjár­mála­eft­ir­lit­in­u. Að sama skapi lágu fyrir tæm­andi upp­lýs­ingar um skuld­bind­ingar Björg­ólfs Thors gagn­vart Lands­bank­an­um. Umræddur eign­ar­hlutur hefur ekk­ert með þær skuld­bind­ingar að ger­a. Þá er rétt að benda á, að í skulda­upp­gjöri Björg­ólfs Thors fólst að hann gerði upp allar skuldir sínar við Lands­banka Íslands. Lán bank­ans til hans og fyr­ir­tækja tengdum honum voru sann­ar­lega mik­il, en að ­sama skapi voru inn­eignir miklar og trygg­ingar örugg­ar, sem sést best á skulda­upp­gjör­inu.

---

Tæp fimm ár eru frá fyrstu fréttum um að Ólafur Krist­ins­son lög­maður ætl­aði að efna til­ hóp­mál­sóknar gegn Björgólfi Thor. Ári síðar sagð­ist hann hafa nokkur hund­ruð fyrr­ver­andi hlut­hafa í Lands­bank­anum með sér í liði, hefði fengið stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu frá líf­eyr­is­sjóðum og fleiri sjóð­ir ætl­uðu að taka afstöðu þá um helg­ina, þ.e. í sept­em­ber 2011. Afstaða líf­eyr­is­sjóð­anna er ljós. Þeir halda sig fjarri, að Stapa einum und­an­skild­um.

Vil­hjálmur Bjarna­son gekk til liðs við Ólaf árið 2012 og höfð­aði vitna­mál til að afla gagna. Ekk­ert kom fram í því máli, sem studdi við til­gátur þeirra um skaða­bóta­skyld­u. ­Björgólfur Thor hefur ávallt verið þeirrar skoð­unar að eðli­legra sé að reka dóms­mál í rétt­ar­sal, en ekki í fjöl­miðl­um. Af hans hálfu verður mál­inu svarað ítar­lega á þeim vett­vang­i."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None