Fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar segir flokkinn vanta bæði forystu og stefnu

Screen-Shot-2015-07-10-at-09.52.24.png
Auglýsing

Sam­fylk­ing­una vantar for­ystu og hún hefur verið bæði stefnu- og ákvarð­ana­fælin í mörg ár. Vegna for­ystu­leysis er mál­flutn­ingur hans óskýr og almennur og þar af leið­andi er stefna hans óskýr. Þetta skrif­ar Ólína Þor­varð­ar­dótt­ir, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og núver­andi vara­þing­maður flokks­ins, á blogg sitt í dag. „Í stað stefnu­festu sem er for­senda trú­verð­ug­leika í stjórn­málum hafa full­trúar flokks­ins farið of almennum orðum um almenn gildi í hverju mál­inu af öðru frekar en að beita sér af þunga í málum sem varða almanna­hag,“ skrifar Ólína.

„Sam­fylk­ingin hefur ekki náð ­neinni fót­festu eftir síð­ustu kosn­ingar enda glímir hún við aug­ljósa for­ystu­kreppu sem birt­ist grímu­laust á síð­asta lands­þingi þegar for­mað­ur­inn hélt velli með eins atkvæðis mun. Fleira kemur þó til sem ekki verður kennt for­manni flokks­ins, a.m.k. ekki ein­göngu. Þá á ég við þá stefnu- og ákvarð­ana­fælni sem ein­kennt hefur Sam­fylk­ing­una mörg und­an­farin ár og birt­ist ann­ars vegar í óljósri orð­ræðu, hins vegar í enda­lausri stefnu­mót­un­ar­vinnu og end­ur­skoðun gilda og starfs­að­ferða sem lítið er gert með loks þegar vinnan er afstað­in.“

Við­brögð Katrínar Júl­í­us­dóttur vara­for­manns, þar sem hún kall­aði eftir alls­herjar end­ur­skoðun starfs­hátta flokks­ins, sé af þessum toga. Flokk­ur­inn þurfi hins vegar ekki meiri stefnu­mót­un­ar­vinnu, heldur stefnu sem hann geti verið stoltur af. „Hættum að hræra í henni og förum nú að tala fyrir henni, beita henni og heim­færa á mál­efni líð­andi stund­ar. Til þess þurfum við for­ystu sem stendur undir nafni og sýnir mál­efna­festu, fólk sem hlustað er á og hikar ekki við að taka stöðu í ein­stökum mál­um, heldur gengur fram af áræði og hug­sjón. Góður vilji er ekki nóg.“

Auglýsing

Ólína segir skoð­ana­kann­anir sýna að for­ystu­menn Sam­fylk­ing­ar­innar hafi ekki náð eyrum eða trún­aði almenn­ings, en það væri samt ein­földun að kenna ein­göngu um mál­flutn­ing­i nú­ver­andi for­ystu flokks­ins. „Sam­fylk­ingin gerði marg­vís­leg og afdrifa­rík mis­tök á síð­asta kjör­tíma­bili. Þjökuð af erf­iðri stjórn­ar­setu sem á sér enga líka í stjórn­mála­sögu okkar yfir­gaf hún, nauðug vilj­ug, þau þrjú mál sem ítrekað höfðu verið skil­greind sem þau mál sem Sam­fylk­ingin bæri helst fyrir brjósti og myndi ljúka: Fisk­veiði­stjórn­un­ar­mál­ið, stjórn­ar­skrár­málið og ESB-um­sókn­ina.“

Hún segir árangur rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur við end­ur­reisn efna­hags­lífs­ins hafa verið bæði van­met­inn og van­þakk­að­an, en samt megi segja að „Sam­fylk­ingin hafi upp­skorið eins og til var sáð á loka­spretti síð­asta kjörtima­bils: Íslend­ingar kusu yfir sig flokk­ana sem komu þjóð­ar­skút­unni á hlið­ina í hrun­inu 2008, enda er fólk fljótt að gleyma.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None