Gæslan á 212 skotvopn, handjárn, piparúða og kylfur - listi birtur

byssa-loegregla-mp5.jpg
Auglýsing

Land­helg­is­gæslan á 212 vopn, en af þeim eru 120 ekki lengur í notk­un. Áætlað var að hríð­skota­byss­urnar hund­rað sem gæslan átti að fá frá norska hernum kæmu í stað þeirra sem aflögð hafa verið og því hafi gjöfin ekki átt að fjölga vopna­kost­um. Land­helg­is­gæslan hef­ur  end­ur­nýjað vopn sín tölu­vert á síð­ust árum. Árið 2011 fékk hún 50 MP5A2N 9 milli­metra byssur gef­ins frá norska hern­um, árið 2012 keypti hún fimm Glock 17 skamm­byssur af umboðs­að­ila hér­lendis á 103 þús­und krónur stykkið og árið 2013 fékk hún tíu  MG3 hríð­skota­byssur gefnar frá norska hern­um. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari inn­an­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, um vopna­öflun og vopna­eign Land­helg­is­gæsl­unn­ar.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna. Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna.

Í svar­inu kemur einnig fram að "inn­kaup, sala, inn­flutn­ingur og útflutn­ingur vopna, sem og skot­færa­gerð, er háð sam­þykki for­stjóra Land­helg­is­gæsl­unn­ar. Sér­að­gerða- og sprengju­eyð­ing­ar­svið ann­ast vörslu vopna Land­helg­is­gæsl­unnar og ber á þeim ábyrgð".

Auglýsing

Katrín spurði einnig hvort Land­helg­is­gæslan hefur yfir öðrum vopnum að ráða en skot­vopn­um. Í svar­inu segir að gæslan "hefur yfir að ráða hand­járn­um, piparúða og kylf­um. Hand­járn eru notuð á hand­tek­inn ein­stak­ling ef hætta er á flótta eða ætla má að öryggi hans eða ann­arra verði ekki tryggt með öðrum hætti. Piparúða og kylfur er heim­ilt að nota þegar væg­ari aðferðir duga ekki til þess að yfir­buga mót­þróa ein­stak­lings við hand­töku".

 

Skráð vopn hjá Land­helg­is­gæsl­unni



































































































































































































































































Vopna­eign. Teg­und Hlaup­vídd Fjöldi Árgerð, upp­lýs­ingar
MP-5 9 mm 50 Árgerð 1990. Gjöf frá Norð­mönnum 2011.
Glock 9 mm 20 Árgerð 1990, 2006 og 2012. Keypt af umboði í Reykja­vík.
Bof­ors L 60 40 mm fall­byssa 40 mm 4 Árgerð 1936. Gjöf frá Dön­um.
MG-3 7,62 mm 10 Árgerð 1990. Gjöf frá Norð­mönnum 2013.
Steyr riff­ill 7,62 mm 8 Árgerð 1989. Keypt af umboði í Reykja­vík.
Sam­tals 92
Ekki lengur í notk­un:
Rem­ington no. 12 4 Árgerð 2000. Keypt af umboði í Reykja­vík.
Smith&Wes­son 38 Police special 38 cal. Special 21 Árgerð 1940. Ekki í notk­un. Mars­hall aðstoð
Enfi­eld riff­ill 303 cal. 10 Árgerð 1910. Ekki í notk­un. Ekki vitað um upp­runa.
G-3 7,62 mm 20 Árgerð 1959. Ekki í notk­un. Gjöf frá Dönum 2006.
Fall­byssa 37 mm 37 mm 3 Árgerð 1898. Ekki í notk­un. Gjöf frá Dön­um.
Cara­bine M1 0.30 cal 7,62 mm 30 Árgerð 1940. Lán­aðar lög­regl­unni í Reykja­vík 1986. Ekki í notk­un.
Cara­bine M2 0.30 cal 7,62 mm 20 Árgerð 1940. Lán­aðar lög­regl­unni í Reykja­vík 1986. Ekki í notk­un.
Fall­byssa 47 mm 47 mm 3 Árgerð 1909. Ekki í notk­un. Gjöf frá Dön­um.
Fall­byssa 57 mm 57 mm 5 Árgerð 1892. Ekki í notk­un. Gjöf frá Dön­um.
Brown­ing M2 12,7 mm 12,7 mm 3 Árgerð 1939. Ekki í notk­un. Kom með flug­bát sem LHG var með í rekstri.
3 Pr Hotchkiss fall­byssa 47 mm 47 mm 1 Árgerð 1912. Ekki í notk­un. Á safni á Ísa­firði.
Sam­tals 120
Heild­ar­fjöldi 212


 

Vopn sem Land­helg­is­gæsl­unni hefur áskotn­ast síð­ast­lið­inn ára­tug



 



































































2006 4 stk. Glock 17 skamm­byssur Keyptar af umboðs­að­ila hér á landi (55.000 kr. stk. með virð­is­auka­skatt­i).
2006 4 stk. Rem­ington no 12 hagla­byssur Keyptar af umboðs­að­ila hér á landi (37.000 kr. stk. með virð­is­auka­skatt­i). Aflagð­ar.
2006 20 stk. G3 rifflar Gjöf frá danska hern­um. Aflagð­ir.
2011 50 stk MP-5 A2N 9 mm x 19 Gjöf frá norska hern­um.
2012 5 stk. Glock 17 skamm­byssur Keyptar af umboðs­að­ila hér á landi (103.538 kr. stk. með virð­is­auka­skatt­i).
2013 10 stk. MG3 hríð­skota­byssur Gjöf frá norska hern­um.


 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None