Gefa út starfsleyfi fyrir Ísteka að Eirhöfða

Engar athugasemdir bárust við auglýsingu á starfsleyfistillögu Ísteka, fyrirtækis sem framleiðir hormónalyf fyrir búfénað úr merarblóði. Fyrirtækinu er heimilt að vinna lyf úr allt að 600 tonnum af blóði á ári.

Blóð sem tekið er úr hundruðum hryssa hér á landi er notað til framleiðslu á frjósemislyfi fyrir húsdýr.
Blóð sem tekið er úr hundruðum hryssa hér á landi er notað til framleiðslu á frjósemislyfi fyrir húsdýr.
Auglýsing

Umhverf­is­stofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfs­leyfi Ísteka ehf. fyrir starfs­stöð á Eir­höfða 13 og 15 í Reykja­vík. Ísteka fram­leiðir horm­óna­lyf sem notuð eru í búfjár­rækt úr blóði sem tekið er úr fyl­fullum hryss­um.

Starfs­leyfis­til­lagan var aug­lýst á vef­síðu Umhverf­is­stofn­unar 28. febr­úar til 28. mars síð­ast­lið­inn. Starf­semin sem um ræðir er nátengd starf­semi Ísteka að Grens­ás­vegi 8, segir í frétt á vef stofn­un­ar­inn­ar, og felur hið nýja leyfi ekki í sér útvíkkun á þeirri starf­semi. Tekið er sér­stak­lega fram í leyf­inu að starf­semin að Eir­höfða skuli rúm­ast innan þeirra heim­ilda er koma fram í nýlega útgefnu starfs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins að Grens­ás­vegi. Sam­kvæmt því er Ísteka heim­ilt að fram­leiða lyf úr allt að 600 tonnum af blóði hryssa á hverju ári. Úr þessu blóð­magni eru fram­leidd 20 kíló af lyfja­efni.

Auglýsing

Í fyrra var fyr­ir­tæk­inu heim­ilt að fram­leiða helm­ingi minna magn, eða tíu kíló á lyfja­efni á ári, lyfi sem er fyrst og fremst notað að auka frjó­semi svína og fleiri hús­dýra í land­bún­aði, líkt og Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um er Ísteka gerði grein fyrir fyr­ir­hug­aðri fram­leiðslu­aukn­ingu í til­kynn­ingu til Skipu­lags­stofn­un­ar.

Starfs­leyfið nær ekki til öfl­unar blóðs, segir í frétt Umhverf­is­stofn­un­ar, heldur felur það í sér skil­yrði um stjórnun á losun meng­un­ar­efna og vökt­un. Mat­væla­stofnun er með eft­ir­lit með lögum um dýra­vel­ferð.

„Talið var nauð­syn­legt að aðgreina starf­sem­ina og gefa út tvö starfs­leyfi í stað eins vegna ákvæða aðal­skipu­lags Reykja­vík­ur­borg­ar,“ segir í frétt Umhverf­is­stofn­unar um ástæður þess að tvö starfs­leyfi hafa nú verið gefin út á starf­semi Ísteka.

Leyf­is­skyld starf­semi er að því er fram kemur í frétt­inni „víkj­andi“ á Eir­höfða þegar litið er til lengri tíma og er ekki hægt að veita leyfi þar nema að hámarki til sex ára sam­kvæmt áliti borg­ar­innar eða til árs­ins 2028. Engar umsagnir bár­ust á aug­lýs­inga­tíma.

Starfs­leyfi Ísteka ehf. á Grens­ás­vegi gildir hins vegar til árs­ins 2038. Þegar það var aug­lýst í lok síð­asta árs bár­ust umsagnir og athuga­semdir frá 237 aðil­um. End­ur­nýjað starfs­leyfi fyrir Grens­ás­veg var gefið út í jan­ú­ar.

Auglýsing

Fyr­ir­tækið Ísteka hefur sætt harðri gagn­rýni síð­ustu mán­uði eftir að upp­ljóstrað var um skelfi­lega með­ferð á hryssum sem not­aðar eru til blóð­tök­unnar í þætti sem þýsk dýra­vernd­un­ar­sam­tök birtu í nóv­em­ber. Mat­væla­stofnun gerði eigin rann­sókn á mál­inu, sem snerti fleiri en einn bæ, og var því að henni lok­inni vísað til lög­reglu.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem blóð­mera­hald hér á landi er gagn­rýnt. Kjarn­inn greindi frá því í febr­úar að á fimm ára tíma­bili hafi blóð­töku fyl­fullra hryssa verið hætt á átta bæjum vegna van­fóðr­unar og slæms aðbún­aðar dýr­anna. Að auki hafa þrír blóð­mera­bændur á sama tíma­bili ákveðið að hætta blóð­töku vegna væg­ari athuga­semda Mat­væla­stofn­un­ar.

Ákvörðun Umhverf­is­stofn­unar um útgáfu starfs­leyfis er kær­an­leg til úrskurð­ar­nefndar umhverf­is- og auð­linda­mála innan eins mán­aðar frá birt­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent