Gjöf MS einskonar tilfærsla á skattfé úr einum vasa í annan

lsh27240.jpg
Auglýsing

Tækja­mál Land­spít­al­ans eru loks að kom­ast í gott horf að nýju og að und­an­förnu hefur hann getað bætt við sig nýjum og spenn­andi tækjum fyrir gjaf­arfé sem auka á vel­ferð allra Íslend­inga, í stað þess að nota það fé til að halda í horf­inu. RÚV greindi frá því í fyrra­dag að gjafir til spít­al­ans frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum haf aldrei verið meiri en akkurat í ár. Á meðal þess sem hann hefur fengið í ár er til að mynda vil­yrði fyrir kaupum á jáeind­arskanna frá Íslenskri erfða­grein­ingu sem kostar um 800 millj­ónir króna.

Fyr­ir­tæki hafa ýmis­konar hag af því að gefa til tækja­kaupa á Land­spít­al­an­um. Starf­semi hans er mjög óum­deild og því gott fyrir vöru­merki að tengj­ast spít­al­an­um. Auk þess má ekki van­meta vilja þeirra til að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð í verki.

Eitt þeirra fyr­ir­tækja sem und­an­farið hefur látið gott af sér leiða með gjöf til Land­spít­al­ans er Mjólk­ur­sam­salan (MS). Hún til­kynnti í vik­unni að annað árið í röð verði blásið til söfn­unar á nýjum tækja­bún­aði fyrir Land­spít­al­ann með því að láta 30 krónur af hverjum seldum lítra af D-vítamín­bættri létt­mjólk renna til þessa. Í fyrra skil­aði þetta átak Land­spít­al­anum 15 millj­ónum króna.

Auglýsing

Þótt að allir styrkir til tækja­kaupa á Land­spít­al­anum séu góðra gjalda verðir hafa margir eðli­lega sett spurn­ingu við þessa veg­ferð MS. Fyr­ir­tækið er nefni­lega með lögvarða ein­ok­un­ar­stöðu á mark­aði og íslenskir skatt­greið­end­ur, sem borga fyrir rekstur Land­spít­al­ans, nið­ur­greiða mjólk­ur­fram­leiðslu um rúma 6,5 millj­arða króna á ári.

Því má líta svo á að gjöf MS sé til­færsla á fé skatt­greið­enda úr einum vasa í ann­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None