Gögnin sem skattrannsóknarstjóri keypti koma frá lögmannsstofu í Panama

Bryndís Kristjánsdóttir
Auglýsing

Gögn um 400 til 500 Íslend­inga sem eiga eignir í skatta­skjól­um, og skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypti nýver­ið, komu frá starfs­manni lög­manns­stof­unnar Mossack Fon­seca & Co í Panama. Íslensku bank­arnir leit­uðu oft til lög­manns­stof­unnar á árunum fyrir hrun í þeim til­gangi að stofna aflands­fé­lög. Þau félög voru síðar seld til íslenskra við­skipta­vina bank­anna. Þetta kemur fram í DV í dag.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Mossack Fon­seca & Co, sem rekur 44 skrif­stofur víða um heim, þar á meðal í Lúx­em­borg, og höf­uð­stöðvar í Pana­ma, er til umfjöll­unar í íslenskum fjöl­miðl­um. Árið 2010 fjall­aði DV um hafa í tengslum við þriggja millj­arða króna lán­veit­ingu fjár­fest­inga­fé­lags­ins Fons, þá í eigu athafna­mann­anna Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­son­ar, til félags­ins Pace Associ­ates í apríl 2007. Pace var skráð til heim­ilis í Panama.

RÚV sagði fréttir af því árið 2010 að pen­ing­arnir sem lán­aðir voru til Pace hafi á end­anum runnið í vasa Pálma, Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Hann­esar Smára­son­ar. Jón Ásgeir höfð­aði meið­yrða­mál gegn frétta­mann­inum sem sagði frétt­ina og vann það á end­anum fyrir Hæsta­rétti. Frétta­mað­ur­inn, Svavar Hall­dórs­son, sagði í Face­book-­stöðu­upp­færslu í kjöl­far dóms­ins: "Fréttin er sönn, til eru gögn fyrir öllum efn­is­at­riðum umræddrar við­skiptafléttu og málið er til rann­sóknar á fleiri en einum stað í kerf­inu (eins og stað­fest er í yfir­lýs­ingu Sér­staks sak­sókn­ara). Sá hluti frétt­ar­innar sem fjall­aði um hvernig yfir­völd töldu raun­veru­lega í pott­inn búið, byggð­ist hins vegar á trún­að­ar­upp­lýs­ingum frá heim­ild­ar­mönnum sem ekki geta komið fram. Þeirra trún­aði mun ég ekki bregðast! Jóni Ásgeiri tókst engan vegin að sýna fram á að neitt rangt við frétt­ina – enda er þetta allt rétt."

Auglýsing

Gögnin kost­uðu 30 millj­ónir



Gögnin sem keypt voru, og eiga að sýna skattaund­an­skot Íslend­inga,  voru afhent síð­ast­lið­inn föstu­dag. Kaup­verð var um 30 millj­ónir króna en í fyrstu vildi selj­and­inn fá 150 millj­ónir króna.



„Næsta skref er að átta sig betur á gögn­unum og fara yfir þau. Gögnin eru í sam­ræmi við það sýn­is­horn sem við höfðum áður séð. En það þarf að greina þau og setja upp áætlun um hvernig unnið verði úr þessu svo far­sæl­ast verði. Þetta er mikið magn,“ sagði Bryn­dís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri í sam­tali við Kjarn­ann fyrr í vik­unni.



Rík­is­stjórnin sam­þykkti í apríl síð­ast­liðnum auka­fjár­veit­ingu til emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra upp á 37 millj­ónir króna til þess að kaupa gögnin um fjár­hags­legar eignir íslenskra aðila í þekktum skatta­skjól­um. Íslensk stjórn­völd hafa aldrei fyrr keypt gögn sem þessi en bæði banda­rísk og þýsk stjórn­völd hafa farið þessa leið með nokkrum ávinn­ingi.



Skatt­rann­sókn­ar­stjóri fékk sýn­is­horn af gögn­unum send í fyrra, og lét fjár­mála­ráðu­neytið vita af mál­inu. Sýn­is­hornin 50 sem emb­ættið fékk bentu sterk­lega til þess að skattaund­an­skot hafi átt sér stað.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None