Grikkir fá líflínu en dómsdagur nálgast

h_51804699-1.jpg
Auglýsing

Grikkir hafa form­lega sent Evr­ópu­sam­band­inu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum til­lögu að sex mán­aða fram­leng­ing­u ­sem á að koma í stað núgild­andi sam­komu­lags, sem rennur út um mán­aða­mótin. Jer­oen Dijs­sel­bloem, for­seti evru­hóps­ins, stað­festi þetta í morg­un. Hann boð­aði einnig til fundar í hópnum á morgun vegna máls­ins.



For­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, Jean-Claude Juncker, segir til­lög­una vera jákvætt skref, sem gæti orðið grund­völlur fyrir sann­gjarnri mála­miðl­un. Þetta sagði tals­maður fram­kvæmda­stjórn­ar­innar um hádeg­ið. Nú væri fram­haldið í höndum evru­hóps­ins.

Auglýsing

Til­laga Grikkja felur í sér fram­leng­ingu á lána­samn­ingnum við ESB og AGS, en ekki fram­leng­ingu á þeim skil­málum sem þeir þurftu að gang­ast undir til þess að fá lán­in. Grikkir telja þessa skil­mála, nið­ur­skurð, skatta­hækk­anir og ýmsar umbæt­ur, hafa gert illt verra í Grikk­landi und­an­farin ár. Sam­komu­lagið hefur þó komið í veg fyrir að Grikk­land verði gjald­þrota frá árinu 2010, en það rennur út eftir níu daga.

Fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna, evru­hóp­ur­inn svo­kall­aði, höfðu gefið stjórn­völdum í Grikk­landi frest þangað til á morgun til að sam­þykkja fram­leng­ingu á núver­andi lána­samn­ingi og þeim aðhalds­að­gerðum sem krafa hefur verið gerð um. Evru­hóp­ur­inn fundar sem fyrr segir í Brus­sel á morg­un, en það verður þriðji fund­ur­inn á tíu dögum um mál­ið.

Yanis Varoufakis fjármálaráðherra og Alexis Tsipras forsætisráðherra. Yanis Varoufa­kis fjár­mála­ráð­herra og Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra.

„Ég trúi því að til­lagan sé full­nægj­andi fyrir Grikki og fyrir for­seta evru­hóps­ins,“ sagði Yanis Varoufa­kis fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands í gær­kvöldi.

Seðla­banki Evr­ópu sam­þykkti í gær­kvöldi við­bót­ar­neyð­ar­lán til Grikkja upp á 3,3 millj­arða evra, til við­bótar við þá 65 millj­arða sem þegar hafa verið veitt­ir. Sú fjár­hæð er nærri upp­ur­in. Nú er rætt hvort stjórn­endur bank­ans ættu að stöðva fjár­magnið til Grikk­lands til að neyða Grikki til að sam­þykkja kröfur evru­hóps­ins. Stjórn bank­ans var ekki ein­huga um að veita við­bót­ar­lán­ið, en nið­ur­staðan var sú á end­anum að það væri ekki hlut­verk bank­ans að kenna Grikkjum ein­hvers konar lex­íu, heldur við­halda stöð­ug­leika í Evr­ópu.

Sá hluti sam­komu­lags­ins sem rennur út um mán­aða­mótin eru lánin við Evr­ópu­sam­bandið og Seðla­banka Evr­ópu. Ef ekki semst á þessum níu dögum verður mik­ill þrýst­ingur á Seðla­banka Evr­ópu að stöðva neyð­ar­lánin til grískra banka. Það gæti valdið svo miklu álagi á fjár­mála­kerfið að í versta falli þyrftu Grikkir að yfir­gefa evr­una og fara að prenta eigin pen­inga. Ef það ger­ist gætu ESB-­ríkin setið uppi með tapið af lánum sínum til Grikk­lands. Grískur gjald­mið­ill myndi strax falla í verði með þeim afleið­ingum að flestar inn­fluttar vörur myndu hækka. Það gæti haft hræði­leg áhrif á sam­fé­lag þar sem fátækt hefur auk­ist mik­ið, með­alinn­koma hefur minnkað um þriðj­ung og einn af hverjum fimm er án vinnu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None