Grikkir sagðir búa sig undir greiðslufall í lok mánaðar

h_51805363-1.jpg
Auglýsing

Grikkir búa sig nú undir mögu­leik­ann á gjald­þroti rík­is­ins, sam­kvæmt nýj­ustu fréttum. Ríkið þarf nauð­syn­lega að fá aukið fjár­magn frá lán­ar­drottnum sínum en samn­inga­við­ræður þess efnis hafa ekki borið árangur enn.

Ef stjórn­völd fá ekki næsta skammt af neyð­ar­lánum fyrir 24. apríl aukast lík­urnar á greiðslu­fall­i ­tölu­vert. 24. apríl er áætl­aður fundur í evru­hópnum svo­kall­aða, fundi fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna. Upp­hæðin sem Grikkir ættu að fá nemur 7,2 millj­örðum evra.

Fin­ancial Times greinir frá því í dag að ekki aðeins sé algjört greiðslu­fall að verða lík­legri kostur í stöð­unni heldur virð­ist sem stjórn­völd séu farin að gera áætl­anir um gjald­þrot. Stjórn­völd báru þessar fregnir þó til baka, en miðað við stöð­una í land­inu þykir mörgum ólík­legt annað en að þessi mögu­leiki sé í það minnsta í skoð­un.

Auglýsing

FT hefur eftir heim­ild­ar­mönn­um, sem hafa fengið kynn­ingu á stöðu mála hjá stjórn­völd­um, að ef ekki tekst að semja við Evr­ópu­sam­band­ið, Seðla­banka Evr­ópu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn fyrir lok apríl verði greiðslu­falli rík­is­ins lýst yfir.

Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að greiða þá ekki 2,5 millj­arða evra end­ur­greiðslur til AGS í maí og júní, ef til þessa kem­ur. Stjórn­völd eru óðum að verða uppi­skroppa með fé til að borga opin­berum starfs­mönnum laun og líf­eyr­i. „Við erum komin á enda­stöð...ef Evr­ópa greiðir ekki neyð­ar­lán þá er eng­inn annar val­kost­ur,“ hefur FT eftir emb­ætt­is­manni á vegum rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Við­ræður um áfram­hald­andi aðstoð ESB og AGS við Grikki eru hafnar á nýjan leik, en hafa ekki verið mjög árang­urs­ríkar hingað til. Þá er vert að hafa í huga að sú aðstoð sem nú er samið um er ein­göngu tíma­bundin og átti að brúa fjög­urra mán­aða bil. Jafn­vel þótt samið verði verður sama staða komin upp aftur innan skamms.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None