Grikkir sendu rangt skjal til lánardrottna - ómögulegt að ná samkomulagi í dag

h_52020465-1.jpg
Auglýsing

Fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna, evru­hóp­ur­inn svo­kall­aði, eru nú að hefja fund um fram­tíð Grikk­lands. Mik­illar bjart­sýni gætti í morgun um að sam­komu­lag um áfram­hald­andi neyð­ar­lán til þeirra tæk­ist í dag, en fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna hafa dempað þær vænt­ingar veru­lega með ummælum sínum á leið inn á fund­inn.

Dag­ur­inn í dag er dagur hinna fjöl­mörgu funda. Í morgun fund­aði stjórn Seðla­banka Evr­ópu um stöð­una í Grikk­landi, svo fund­aði Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, með Christine Lag­ar­de, fram­kvæmda­stjóra AGS, Mario Drag­hi, banka­stjóra Seðla­banka Evr­ópu, Jean-Claude Juncker, for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB og Jer­oen Dijs­sel­bloem, for­seta evru­hóps­ins. Þau ræddu um nýjar til­lögur að umbótum sem Grikkir lögðu fram seint í gær­kvöldi. Þessum til­lögum var almennt vel tekið að sögn fjöl­miðla og þær sagðar vera í átt­ina að því sem lán­ar­drottnar vilja. Svo hefur komið í ljós að Grikkir sendu frá sér vit­laust skjal og réttu umbóta­til­lög­urnar komu mjög seint fram. Raunar segir Wolf­gang Schäu­ble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, að til­lög­urnar séu ekk­ert breyttar frá því sem var fyrir helg­ina. Án almenni­legra til­lagna frá Grikkjum verði ekk­ert hægt að gera.

Alex­ander Stubb, fjár­mála­ráð­herra Finn­lands, var einn fyrsti ráð­herr­ann sem tal­aði við fjöl­miðla á leið sinni inn á fund evru­hóps­ins, en hann sagð­ist hafa „mjög litlar vænt­ing­ar“ til dags­ins í dag. Undir það tók Mich­ael Noon­an, fjár­mála­ráð­herra Írlands. Hann sagði að rugl­ing­ur­inn hjá Grikkj­um, að senda fyrst vit­laust umbóta­skjal til lán­ar­drottna sinna, hafi valdið því að evru­hóp­ur­inn hafi ekki getað und­ir­búið fund sinn vel. Því hefði hann mjög litlar vænt­ingar til fund­ar­ins. „Þetta segir mikið um ástandið í Aþenu en ekk­ert um ástandið ann­ars staðar í Evr­ópu,“ sagði hann um þessi mis­tök Grikkja.

Auglýsing

Það fór vel á með Alexis Tsipras og Jean-Claude Juncker fyrir fund þeirra í Brussel í morgun. Það fór vel á með Alexis Tsipras og Jean-Claude Juncker fyrir fund þeirra í Brus­sel í morg­un­.

Síð­asti fundur dags­ins er svo í kvöld, klukkan fimm að íslenskum tíma, en þá munu leið­togar allra Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna halda neyð­ar­fund.

Vegna allra þess­ara fund­ar­halda voru uppi vonir um að sam­komu­lagi um áfram­hald­andi neyð­ar­lán til Grikkja næð­ist í dag, en ýmsir leið­togar hafa dempað þær vonir í sam­tölum við fjöl­miðla í morg­un. Ang­ela Merkel Þýska­landskansl­ari sagði við þýska fjöl­miðla í morgun að enn væri nokk­urra daga vinna eftir áður en hægt yrði að taka ákvarð­anir um fram­hald­ið. Jean-Claude Juncker sagði áður en funda­höldin í dag hófust að búið væri að ná fram­förum yfir helg­ina en „við erum ekki komin á áfanga­stað enn. Ég veit ekki hvort við náum sam­komu­lagi í dag.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None