Grímseyjarferjan síðast boðin út fyrir 13 árum - samningur við Samskip ítrekað framlengdur

ferja-1.jpg
Auglýsing

Rekstur Gríms­eyj­ar­ferj­unnar Sæfara, sem sinnir sigl­ingum á milli Dal­víkur og Gríms­eyjar og Dal­víkur og Hrís­eyj­ar, var síð­ast boð­inn út árið 2002, eða fyrir þrettán árum. ­Flutn­inga­fyr­ir­tækið Sam­skip hefur á þessum tíma rekið ferj­una sam­kvæmt samn­ingi við Vega­gerð­ina. Rekstr­ar­samn­ing­ur­inn hefur verið fram­lengdur sjö sinnum síðan 2002, en Vega­gerðin hefur greitt tæpan millj­arð króna í styrk með rekstri Gríms­eyj­ar­ferj­unnar á tíma­bil­inu, en um fimmtán pró­sent af styrknum eru vegna sigl­inga til Hrís­eyj­ar.

Ákveðið að fram­lengja af ýmsum ástæðum



Upp­haf­legur rekstr­ar­samn­ingur Vega­gerð­ar­innar við Sam­skip hljóð­aði upp á tvö ár, en samn­ing­ur­inn var fram­lengdur um tvö ár árið 2004, eins og heim­ild var fyrir í samn­ingn­um. Sam­kvæmt skrif­legu svari G. Pét­urs Matth­í­as­son­ar, upp­lýs­inga­full­trúa Vega­gerð­ar­inn­ar, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans, var ákveðið að fram­lengja vegna áður­nefndar fram­leng­ing­ar­heim­ildar og vegna ánægju með verk­tak­ann, það er Sam­skip.

Þegar skipt var um Gríms­eyj­ar­ferju á árunum 2006 til 2008, eins og frægt er orð­ið, þótti Vega­gerð­inni ekki rétt að bjóða ferj­una út undir þeim kring­um­stæð­um, að því er fram kemur í svari upp­lýs­inga­full­trúa stofn­un­ar­inn­ar. Því var rekstr­ar­sam­ingur ferj­unnar tví­fram­lengdur um eitt ár í senn, árin 2006 og 2007.

Vegna banka­hruns­ins ákvað Vega­gerðin í lok árs 2008 að fram­lengja rekstr­ar­samn­ing vegna Gríms­eyj­ar­ferj­unnar um tvö ár til við­bót­ar. Síðan þá hefur samn­ing­ur­inn verið fram­lengdur í þrí­gang, í nóv­em­ber 2010 um eitt ár, þann 7. des 2011 var rekstr­ar­samn­ing­ur­inn fram­lengdur um tvö ár og þann 14. nóv­em­ber 2013 um tvö ár. Ástæður fram­leng­ing­anna má rekja til ánægju Vega­gerð­ar­innar með þjón­ustu og verð verk­tak­ans, að því er fram kemur í áður­nefndu svari Vega­gerð­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Auglýsing

Núgild­andi rekstr­ar­samn­ingur rennur út 31. des­em­ber næst­kom­and­i. Hjá Vega­gerð­inni hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort og þá hvenær ráð­ist verður í útboð á rekstri Gríms­eyj­ar­ferj­unn­ar.

Greiðslur með ferj­unni hækkað um hund­rað millj­ónir



Árið 2002 greiddi Vega­gerðin tæpar 35 millj­ónir króna með rekstri Sæfara. Upp­hæðin tók litlum breyt­ingum næstu árin á eft­ir, eða þar til árið 2006 þegar hún hækk­aði upp í rúmar 44 millj­ónir króna. Árið 2008 tók sam­göngu­styrk­ur­inn aftur stökk upp á við, og hækk­aði upp í tæpar 67 millj­ónir króna.

Síðan þá hefur styrkur Vega­gerð­ar­innar til Gríms­eyj­ar­ferj­unnar hækkað nokkuð ört. Árið 2009 var hann kom­inn upp í tæpar 75 millj­ónir króna, árið eftir hljóð­aði hann upp á tæpar 80,5 millj­ónir króna. Eftir ákvörðun Vega­gerð­ar­innar um að fram­lengja rekstr­ar­samn­ing Sæfara við Sam­skip í lok árs 2010, hækk­aði nið­ur­greiðsla stofn­un­ar­innar með rekstri Gríms­eyj­ar­ferj­unnar um tæpar átján millj­ónir króna á milli ára, og fór upp í rúmar 98 millj­ónir króna árið 2011.

Sam­göngu­styrk­ur­inn hækk­aði um rúma 21 milljón króna árið eft­ir, eða upp í tæpar 120 millj­ónir króna. Árið 2013 nam sam­göngu­styrkur Vega­gerð­ar­innar vegna Gríms­eyj­ar­ferj­unnar röskum 124 millj­ónum króna, og í fyrra hækk­aði styrk­ur­inn um tæpar þrettán millj­ónir á milli ára og end­aði í rúmum 137 millj­ónum króna. Frá árinu 2002 hefur því Vega­gerð­inn greidd Sam­skipum hátt í 937 millj­ónir króna vegna rekst­urs Gríms­eyj­ar­ferj­unnar Sæfara.

Þess ber að geta að rekstr­ar­samn­ing­ur­inn er verð­bættur með hlið­sjón af vinnu­laun­um, olíu­kostn­aði, hafn­ar­gjöldum og öðrum rekstr­ar­kostn­aði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None