Grísk stjórnvöld í vanda heima fyrir - þingmaður biður þjóðina afsökunar

h_51805363-1.jpg
Auglýsing

Umbóta­á­ætlun grískra stjórn­valda verður send til Brus­sel fyrir lok dags­ins í dag, líkt og samið var um í sam­komu­lagi Grikk­lands við Evr­ópu­sam­bandið og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn á föstu­dags­kvöld. Hún hefur ekki enn verið send þrátt fyrir sögu­sagnir um ann­að, og hún hefur ekki verið gerð opin­ber þrátt fyrir að upp­lýs­ingar hafi lekið út um inni­hald­ið. Sam­þykkt þess­arar áætl­unar er for­senda þess að sam­komu­lagið haldi næstu fjóra mán­uð­ina og Grikkir fái áfram aðstoð og forð­ist gjald­þrot.

Grikkir hyggj­ast afla fjár með því meðal ann­ars að ráð­ast til atlögu gegn spill­ingu og skattsvikum í land­inu, sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem hafa lekið út um áætl­un­ina. Búist er við því að hægt verði að fá 2,5 millj­arða evra vegna ógreiddra skatta auð­jöfra, aðra 2,5 millj­arða evra vegna ógreiddra skatta ein­stak­linga og fyr­ir­tækja og 2,3 millj­arða evra með því að ráð­ast gegn ólög­legu smygli á bens­íni og sígar­ett­um, sam­kvæmt heim­ildum þýska blaðs­ins Bild.



Lána­drottnar Grikkja þurfa að sam­þykkja áætlun þeirra til þess að Grikkir fái þá 7,2 millj­arða evra í fjár­hags­að­stoð sem um var samið. Rætt verður um áætl­un­ina á síma­fundi á morg­un. Öll þjóð­þing þeirra átján ríkja sem mynda evru­svæðið með Grikkjum þurfa að sam­þykkja sam­komu­lagið til þess að það taki gildi. Ef ekki tekst að ganga frá fram­haldi aðstoðar við Grikki gætu þeir orðið uppi­skroppa með fé í mars, en þeir eiga að greiða Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum 1,5 millj­arð evra í næsta mán­uði.

Vand­ræði heima fyrir



Flestir stjórn­mála­skýrendur virð­ast sam­mála um að Grikkir hafi gefið veru­lega eftir í samn­inga­við­ræð­un­um, og á end­anum sam­þykkt næstum því allar sömu aðhalds­að­gerðir og fyr­ir­renn­arar þeirra gerð­u. Fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, Wolf­gang Schaeu­ble, orð­aði það sem svo að Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra ­myndi eiga erfitt með að útskýra og rétt­læta sam­komu­lagið fyr­ir­ Grikkj­um. Stjórn­völd í Grikk­landi höfðu jú sagt að þau myndu segja skilið við aðhalds­að­gerðir og við hina höt­uðu troiku, þrenn­ing­una Evr­ópu­sam­band­ið, Seðla­banka Evr­ópu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn. Í nýja sam­komu­lag­inu eru þessar þrjár stofn­anir enn, þær heita bara stofn­an­irnar þrjár en ekki troika.

Með­limir stjórn­ar­flokks­ins Syr­iza voru nokkuð þög­ulir um helg­ina en svo virð­ist sem óánægjan sé að koma upp á yfir­borð­ið, að sögn Guar­di­an. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig í dag er Costas Lapa­vitsas, þing­maður Syr­iza og hag­fræði­pró­fess­or. Hann sagði að þeir þing­menn sem voru kosnir á grund­velli lof­orða flokks­ins og þeir sem telji lof­orðin vera skuld­bind­and­i ­gagn­vart grísku þjóð­inni séu mjög áhyggju­full­ir. Það sé skylda þeirra að láta af því vita.

Manolis Glezos, gam­al­reyndur og virtur vinstri maður og Evr­ópu­þing­maður fyrir Syr­iza, var einn sá fyrsti til að gagn­rýna ­stjórn­völd fyrir sam­komu­lag­ið. „Ég bið grísku þjóð­ina að fyr­ir­gefa mér fyrir að hafa átt þátt í þess­ari blekk­ing­u,“ sagði hann í grein um helg­ina. „Sumir segja að til þess að ná sam­komu­lagi verði að gefa eft­ir. Fyrir það fyrsta: það er aldrei hægt að ná fram mála­miðl­unum milli kúg­ara og þess kúg­aða. Milli þrælsins og her­náms­manns­ins er eina lausnin frelsi.“

"Eng­inn áróður eða hring­snún­ingur felur þá ein­földu stað­reynd að þeir lugu að borg­urum og seldu blekk­ing­ar,“ sagði svo leið­togi sós­í­alista­flokks­ins PASOK, Evang­elos Ven­izelos. Hann var í síð­ustu rík­is­stjórn lands­ins sem vara­for­sæt­is­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None