Grískir fjölmiðlar segja ESB tilbúið með tillögur að lausn fyrir Grikkland

junckernota.jpg
Auglýsing

Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, hefur sent til­lögur að sam­komu­lagi ESB, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og Grikk­lands um áfram­hald­andi neyð­ar­lán til Grikkja. Þetta segir gríski fjöl­mið­ill­inn To Vima og seg­ist hafa sam­komu­lagið undir hönd­um. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins seg­ist ekki geta stað­fest að búið sé að senda til­lögur neitt, en neit­aði því þó ekki, sem hefur vakið athygli.





Fjöl­margar til­lögur að umbótum eru í skjal­inu sem To Vima hefur undir hönd­um. Þær eru skil­yrði fyrir því að losað verði um fimm millj­arða evra lán til Grikkja, sem þeir þurfa nauð­syn­lega á að halda til þess að geta staðið í skil­um. Grísk stjórn­völd hafa varað við því und­an­farna mán­uði að þau séu nálægt því að verða uppi­skroppa með fé til að end­ur­greiða lán og borga út laun og líf­eyri.

Sam­kvæmt sam­komu­lag­inu er fyrsta skil­yrðið að festa í lög allar þær umbætur sem kraf­ist er, og það strax í maí. Annað skil­yrðið er að Grikkir geri umtals­verðar breyt­ingar á efna­hags­kerfi sínu fyrir haust­ið. Þær umbætur eru meðal ann­ars breyt­ingar á líf­eyr­is­kerf­inu og vinnu­mark­aðn­um. Í skjal­inu sem To Vima hefur undir höndum eru þó færri umbætur og breyt­ingar en hingað til hefur verið talað um. Þá kemur fram í fréttum að Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi efa­semdir um þessa til­lögu, sem þykir rausn­ar­legri við Grikki en það sem hingað til hefur verið til umræðu. Séu þetta réttar til­lögur frá ESB þykja þær sigur fyrir Syr­iza, stjórn­ar­flokk­inn í Grikk­landi.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None