Guðlaugur Þór: "Groddaraleg eingreiðsla upp á fjögur þúsund milljónir króna"

15084005597-4b6f84db7d-z.jpg
Auglýsing

And­staða er við það innan fjár­laga­nefndar að ríkið taki við þriggja millj­arða króna líf­eyr­is­skuld­bind­ingum RÚV og að hætt verði við að lækka útvarps­gjald­ið. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ­segir að ef ríkið tæki yfir skuld­bind­ing­arnar og að hætt verði við lækkun á útvarps­gjaldi væri það "ansi grodd­ara­leg ein­greiðsla upp á fjögur þús­und millj­ónir króna".

Í rekstar- og aðgerð­ar­á­ætlun um rekstur RÚV, sem Morg­un­blaðið greindi frá í morg­un, er ein for­senda þess að hann kom­ist í jafn­vægi án veru­legrar skerð­ingar á þjón­ustu sú að ríkið yfir­taki líf­eyr­is­skuld­bind­ingar fyr­ir­tæk­is­ins. Þær eru um þrír millj­arðar króna. Verði þetta að veru­leika, ásamt því að RÚV selji lóðir fyrir 1,4 millj­arða króna, munu lang­tíma­skuldir RÚV lækka úr 4,4 millj­örðum króna í 402 millj­ónir króna, eða um fjögur þús­und millj­ónir króna. Áætl­unin er unnin af RÚV í sam­ráði við starfs­hóp þriggja ráðu­neyta. Þetta kemur fram í grein­ar­ferð fjár­laga­nefndar Alþingis um fjár­hag RÚV þar sem áætl­unin er til umfjöll­un­ar. Fjár­mála­ráðu­neytið hefur þegar sam­þykkt áætl­un­ina.

Í áætl­un­inni er gert ráð fyrir að tap upp á 33 millj­ónir króna verði á rekstri RÚV á yfir­stand­andi ári. Hagn­aður verði hins vegar af rekstr­inum rekstr­ar­árið 2015-2016 upp á 1.540 millj­ónir króna, að mestu vegna lóða­sölu upp á 1,4 millj­arða króna. Sam­kvæmt áætl­un­inni verður rekstur RÚV heilt yfir í jafn­vægi á því sex ára tíma­bili sem fjallað er um í henni.

Auglýsing

Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, fer með mál­efni RÚV. Hann sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að engar ákvarð­anir hafi verið teknar af hálfu stjórn­valda um að taka yfir líf­eyr­is­skuld­bind­ingar RÚV. Hann hefur sjálfur ekki viljað taka afstöðu til máls­ins strax.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None