Guðmundur hættur við að leggja fram tillögu um róteringu á embættum Bjartrar framtíðar

gummi.jpg
Auglýsing

Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, hefur til­kynnt flokks­mönnum að hann sé hættur við að leggja fram til­lögu um róter­ingu á æðstu emb­ættum flokks­ins á árs­fundi hans sem fram fer 5. sept­em­ber næst­kom­andi. Það gerði hann með stöðu­upp­færslu á lok­uðu Face­book-­svæði Bjartrar fram­tíðar fyrr í dag.

Guð­mundur segir þar að róter­ing muni hvort eð er eiga sér stað í ljósi þess að hann muni hætta sem for­mað­ur, Róbert Mars­hall sem þing­flokks­for­maður og Mar­grét Mart­eins­dóttir sem stjórn­ar­for­mað­ur. Í stað til­lögu um róter­ingu æðstu emb­ætta ætlar Guð­mundur að leggja til að stofnuð verði laga­breyt­ing­ar­nefnd og að til­laga hans um róter­ingu emb­ætta verði sett inn í hana til umfjöll­un­ar. Því bíði ákvörðun um að setja róter­ingu í lög flokks­ins þarnæsta árs­fund­ar.

Guð­laug Krist­jáns­dótt­ir, for­maður bæj­ar­stjórnar í Hafn­ar­firði og bæj­ar­full­trúi Bjartrar fram­tíð­ar, er enn sem komið er sú eina sem hefur til­kynnt að hún sæk­ist eftir emb­ætti for­manns Bjartrar fram­tíðar á árs­fundi sem hald­inn verður 5. sept­em­ber næst­kom­andi. Fjögur fram­boð hafa hins vegar borist til emb­ættis stjórn­ar­for­manns Bjartrar fram­tíð­ar. Þau eru frá Guð­laugu, sem sæk­ist þá eftir öðru hvoru emb­ætt­inu í for­ystu­sveit flokks­ins, Kar­ólínu Helgu Sím­on­ar­dótt­ur, Matth­í­asi Frey Matth­í­assyni og Preben Pét­urs­syni. Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu Bjartrar fram­tíðar sem birt var í gær.

Auglýsing

Enn er nægur tími fyrir fleiri að bjóða sig fram þar sem fram­boð þurfa að ber­ast fyrir upp­haf árs­fund­ar­ins. All­ir ­skráð­ir ­fé­lagar í Bjartri fram­tíð geta boðið sig fram í emb­ætt­in.

Fjöl­margir hafa verið orð­aðir við for­manns­fram­boð. Einn þeirra er Heiða Krist­ín, en hún til­kynnti í gær að hún myndi ekki bjóða sig fram. Þess í stað hvatti hún Bryn­hildi Pét­urs­dótt­ur, þing­mann flokks­ins, til fram­boðs. Bryn­hildur hefur ekki sagt af eða á um hvort hún muni láta slag standa. Sömu sögu er að segja af Óttarri Proppé, þing­manni Bjartrar fram­tíð­ar, en í við­tali við Frétta­blaðið í dag seg­ist hann treysta sér til for­ystu­starfa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None