Hálfgerð Eurovision-stigagjöf hjá matsnefnd Hörpu sögð óhefðbundin

Val matsnefndar á vegum tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu á ljósabúnaði var fellt úr gildi með úrskurði kærunefndar útboðsmála um miðjan síðasta mánuð. Aðferðafræðin við stigagjöf var óhefðbundin, sagði kærunefndin.

Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa við Austurhöfn.
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa við Austurhöfn.
Auglýsing

Kæru­nefnd útboðs­mála ógilti um miðjan síð­asta mánuð val tón­list­ar- og ráð­stefnu­húss­ins Hörpu á ljósa­bún­aði, í útboði sem aug­lýst var síð­asta vor. Tækja­leigan Exton varð hlut­skörpust í útboð­inu, en tvö fyr­ir­tæki, Luxor tækja­leiga ehf. og ID Elect­ron­ics ehf. kærðu útboðið og leiddi fyrri kæran, frá Luxor, til þess að samn­ings­gerð Hörpu við Exton var stöðvuð þegar í júlí­mán­uði.

Þetta kemur fram í tveimur úrskurðum frá kæru­nefnd­inni, sem voru birtir á úrskurða­vef stjórn­valda 30. des­em­ber. Í þeim segir að í útboð­inu hafi verið sett á fót sér­stök mats­nefnd til að leggja mat á ljósin og gefa þeim ein­kunn­ir, en við fram­kvæmd­ina voru öll þau ljós sem boðin voru fram af alls fimm fyr­ir­tækjum sett upp og prufu­keyrð í sölum húss­ins.

Kæru­nefnd útboðs­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu að aðferða­fræði nefnd­ar­innar við stiga­gjöf­ina hefði verið óhefð­bund­in, auk þess sem aðferða­fræð­innar hefði ekki verið getið í útboðs­gögnum og beit­ing hennar því ekki verið fyr­ir­sjá­an­leg fyrir fyr­ir­tækin sem tóku þátt í útboð­inu. Auk þess taldi kæru­nefndin að störfum mats­nefnd­ar­innar við mat á lita­blöndun ljósanna hefði verið áfátt.

10, 6, 4, 2, 0

Í úrskurðum kæru­nefnd­ar­innar er farið yfir það hvernig stiga­gjöf­inni hjá mats­nefnd­inni var hátt­að, en segja má að um hálf­gerða Eurovision-­stiga­gjöf hafi verið að ræða.

Við hvern lið mats­ins gaf nefndin stig þannig að það ljós sem þótti best fékk 10 stig, það ljós sem þótti næst best fékk 6 stig, þá 4 stig, svo 2 og loks fengi sísta ljósið 0 stig.

Kæru­nefnd útboðs­mála segir að af þess­ari stiga­gjöf leiði „að mun­ur­inn á milli ljósanna var ekki endi­lega sá sem stiga­gjöfin gaf til kynna“.

Auglýsing

„Það ljós sem þótti best í hverjum flokki fékk enda ávallt til­teknum stiga­fjölda meira en þau sem komu á eftir jafn­vel þótt óveru­legur munur hafi verið á gæðum ljósanna eða hvernig þau upp­fylltu þau atriði sem mats­nefndin horfði til. Stigamatið var því til þess fallið að ýkja gæði ljósa sem fengu góða ein­kunn fyrir einn þátt og gefa til kynna að þau stæðu að gæðum nokkru framar öðr­um. Að sama skapi var það til þess fallið að gera öðrum ljósum erfitt fyrir ef þau fengu ekki góða ein­kunn fyrir einn þátt,“ segir í úrskurði kæru­nefnd­ar­inn­ar.

Nið­ur­staða kæru­nefnd­ar­innar varð því sem áður segir að fella val Hörpu á ljósum frá Exton úr gildi, en auk þess var Harpa, sem er í eigu rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borg­ar, talin skaða­bóta­skyld gagn­vart ID Elect­ron­ics, og þarf tón­list­ar- og ráð­stefnu­húsið einnig að greiða bæði Luxor tækja­leigu og ID Elect­ron­ics eina milljón króna í máls­kostn­að.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið skoð­aði útboðs­mál Hörpu

Ekki er ýkja langt um liðið frá því að annað stjórn­vald, Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið, gerði nokkrar athuga­semdir við útboðs­mál í Hörpu, en í áliti eft­ir­lits­ins frá því í júlí voru Hörpu meðal ann­ars gefin til­mæli um að „við­hafa í rík­ara mæli verð­fyr­ir­spurnir og útboð við leigu á við­bót­ar­tækjum sem nauð­syn­leg eru í starf­semi tón­list­ar­húss­ins“.

Við grein­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á árunum 2011-2019 sást að á bil­inu 55-60 pró­sent allra leigu­við­skipta með við­bótar hljóð-, ljósa- eða mynd­búnað var við fyr­ir­tækið Exton, sem varð hlut­skarp­ast í útboði á ljósa- og hljóð­kerfum húss­ins við útboð sem ÍAV stóð fyrir er húsið var í bygg­ingu árið 2008.

Einnig fékk Harpa til­mæli um að end­ur­skoða verk­lag og reglur sem heim­ila við­skipta­vinum að leigja og nýta tækja­búnað frá öðrum aðilum en Hörpu. Var mælst til þess af hálfu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að fallið yrði frá því að gera það að skil­yrði að Harpa leigði bún­að­inn og end­ur­leigði hann svo til við­skipta­vina.

ID Elect­ron­ics hafði þá áður kvartað yfir því að reglur Hörpu kæmu í veg fyrir að hægt væri að nota utan­að­kom­andi hljóð­kerfi í hús­inu, og þrátt fyrir að Harpa hefði að ein­hverju leyti brugð­ist við kvört­unum í þá veru var áfram kvartað yfir miklum kostn­aði og öðrum mögu­legum hindr­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent