Hanna Birna hættir sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins

hannabirna.jpg
Auglýsing

Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar ekki að bjóða sig fram aftur til vara­for­manns flokks­ins. Hún til­kynnti þetta með bréfi til sjálf­stæð­is­manna nú í kvöld, og birti það svo á Face­book-­síðu sinni.

Hanna Birna seg­ist þakk­lát fyrir hvatn­ingu sem hún hafi fengið frá mörgum um að sækj­ast eftir end­ur­kjöri. „Ég hefði með stolti og ánægju verið reiðu­búin að gegna áfram emb­ætti vara­for­manns. Ég hefði líka með stolti og ánægju tekið þátt í mál­efna­legri kosn­ingu og tekið hverri þeirri nið­ur­stöðu sem á lands­fundi hefði orð­ið. En þegar nú blasir við að eina ferð­ina enn á að stilla ákvörð­unum er mig varða upp sem ein­hverju upp­gjöri við hið svo­kall­aða leka­mál þá finn ég sterkt að ég hvorki get né vil leggja enn einn slag­inn um það mál á flokk­inn, mig eða mína.“

Hér að neðan má lesa bréfið sem hún birti í heild sinni.

Auglýsing

„Kæru vin­ir.

Með bréfi þessu vil ég deila með ykkur hvers vegna ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér sem vara­for­maður á kom­andi lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Fyrst vil ég nefna hve þakk­lát ég er og hversu vænt mér þykir um þá hvatn­ingu sem ég hef fengið frá mörgum ykkar um að sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Ég hef hlustað á rökin um að ég standi enn fyrir sömu hug­sjónir og þær sem hafa veitt mér öfl­ugan stuðn­ing ykk­ar; um að hug­myndir mínar um betri stjórn­mál eigi síst minna erindi nú; um að ákveðin breidd í for­ystu flokks­ins sé mik­il­væg og að konur megi ekki enn og aftur hörfa þegar á móti blæs. Þar sem ég er sam­mála mörgu af þessu og vegna þess hve mikla ástríðu ég hef fyrir þeim verk­efnum sem bíða, hef ég hingað til haldið öllu opnu og sagt að ég muni - að öllu óbreyttu - vera í kjöri til vara­for­manns á kom­andi lands­fundi.

En ég hef líka sagt við mörg ykkar að eftir það sem á undan er geng­ið, sæki ég ekki sjálf­viljug í hörð póli­tísk átök í bráð. Ég hefði með stolti og ánægju verið reiðu­búin að gegna áfram emb­ætti vara­for­manns. Ég hefði líka með stolti og ánægju tekið þátt í mál­efna­legri kosn­ingu og tekið hverri þeirri nið­ur­stöðu sem á lands­fundi hefði orð­ið. En þegar nú blasir við að eina ferð­ina enn á að stilla ákvörð­unum er mig varða upp sem ein­hverju upp­gjöri við hið svo­kall­aða leka­mál þá finn ég sterkt að ég hvorki get né vil leggja enn einn slag­inn um það mál á flokk­inn, mig eða mína. Ég ítreka hversu miður mér þykir að það tveggja ára gamla mál skyldi fara eins og það fór, vildi óska að ég hefði vitað þá það sem ég veit nú - en end­ur­tek að ég reyndi í öllu því ferli að gera það sem ég á hverjum tíma taldi rétt og satt. Ég hef viljað trúa því að flokk­ur­inn og fólkið sem ég hef starfað með og fyrir í um 20 ár myndi meta mig á fleiri mæli­kvörðum en þeim mis­tökum sem eðli­lega verða í svo erf­iðu máli, en upp­lifi sterkt að það verður ekki gert á þessum lands­fundi sem ég tel að verði að snú­ast um stærri fram­tíð­ar­mál. Ég hef alltaf talað fyrir því að flokks­menn eigi að geta valið sér fólk til for­ystu þegar og eins og þeir vilja. Ég vil ekki að mín per­sóna hafi nokkur áhrif á þann vilja lands­fund­ar­full­trúa að ganga til slíkra kosn­inga nú, en mun hins vegar standa utan við það kjör að þessu sinni.

Ég ítreka þakkir mínar fyrir sam­starf, stuðn­ing og skemmti­legar stund­ir. Það hafa verið algjör for­rétt­indi að vera vara­for­maður ykkar og um leið og ég mun sakna þess hlut­verks, held ég áfram að nota starfs­krafta mína í þágu stefnu okkar og hug­sjóna. Ég er því, kæru félagar og vin­ir, hvergi nærri hætt að leggja mig fram í bar­áttu fyrir enn betra Íslandi og hlakka til fram­halds­ins!

Með bestu kveðj­um,

Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir,

vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None