Hanna Birna hættir vegna tortryggni og vantrausts

hannabirna.jpg
Auglýsing

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra hefur til­kynnt Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, form­lega um að hún vilji hætta sem ráð­herra og hún sæk­ist ekki lengur eftir því að gegna emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra. Þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins fengu vit­neskju um afsögn hennar síð­deg­is.

Í yfir­lýs­ingu sem Hanna Birna hefur sent frá sér, segir að hún hafi frá upp­hafi Leka­máls­ins reynt að vanda til verka og alltaf brugð­ist við með þeim hætti sem hún hafi talið satt og rétt. Hún hafi ítrekað sagt frá því sem hún hafi getað sagt um mál­ið, og reynt að skýra það með eins sönnum hætti og henni hafi verið unnt. Hún hafi látið fram­kvæma sér­staka skoðun í ráðu­neyt­inu, hafi orðið við öllum beiðnum lög­reglu um gögn og upp­lýs­ingar en um leið reynt að vernda mann­rétt­indi og trúnað við aðra en þá sem rann­sóknin beind­ist að. Þá hafi hún svarað ítrek­uðum spurn­ingum umboðs­manns Alþingis og lagt ríka áherslu á að vinna skýr­ari verk­lags­reglur og örygg­is­ferla til að bregðst við slíkum málum og kær­um. Hún hafi vikið aðstoð­ar­manni sínum frá störfum tíma­bundið og síðar sagt sig frá verkum dóms­mála­ráð­herra. Þá hafi hún um leið og hún fékk fyrst stað­festar upp­lýs­ingar um hvernig í mál­inu lá, rekið aðstoð­ar­mann sinn taf­ar­laust. Hún hafi ítrekað tjáð sig um að hún hafi ekki blandað sér með óeðli­legum hætti í rann­sókn Leka­máls­ins og það hafi Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri, rík­is­sak­sókn­ari, rann­sak­endur og loks hér­aðs­dómur stað­fest með nið­ur­stöðum sín­um.

Þá segir í yfir­lýs­ing­unni: „Und­an­farna daga hef ég hins vegar skynjað að ekk­ert af þessu skiptir raun­veru­lega máli. Tor­tryggni og van­traust vegna máls­ins eru enn til staðar og ákveðnir aðilar og öfl geta og munu áfram halda uppi efa­semdum og ásök­unum vegna þess. Það er því miður búið að draga of marga inn í þessa umræðu ítrekað og með ósann­ind­um, þar með talið nú síð­ast ráðu­neyt­is­stjóra inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, núver­andi lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og aðra emb­ætt­is­menn. Þau, ekki frekar en ég, höfðu vit­neskju um brot­ið. Nú er mál að linn­i.“

Auglýsing

Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu, var dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á dög­un­um, fyrir að leka per­sónu­upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­anda úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu til fjöl­miðla í nóv­em­ber á síð­asta ári. Hann hefur ítrekað þver­neitað að Hanna Birna hafi verið við­riðin mál­ið.

Hægt er að lesa yfir­lýs­ingu Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í heild sinni hér.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None