Hanna Birna segist ekki hafa haft áhrif á rannsókn lögreglu á lekamálinu

15247542156_c1d3eec5e2_z.jpg
Auglýsing

Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, fyrrum inn­an­rík­is­ráð­herra, seg­ist ekki hafa haft áhrif á rann­sókn lög­reglu á leka­mál­inu né hafi hún við­ur­kennt að hafa reynt það. Þetta kemur fram í athuga­semd við frétt í kvöld­fréttum RÚV í gær.

Athuga­semdin er það eina sem heyrst hefur opin­ber­lega frá Hönnu Birnu síðan að álit umboðs­manns Alþing­is, á sam­skiptum hennar við fyrrum lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á meðan að á rann­sókn leka­máls­ins stóð, var birt á föstu­dag.

Í gær­kvöldi var athuga­semd bætt við net­út­gáfu frétt­ar­inn­ar. Í henni segir "Hanna Birna Krist­jáns­dóttir gerir athuga­semdir við þá full­yrð­ingu í þess­ari frétt að hún hafi við­ur­kennt að hafa reynt að hafa áhrif á rann­sókn lög­reglu á leka­mál­inu. Það hafi hún hvorki gert né við­ur­kennt."

Auglýsing

Fór langt út fyrir vald­svið sitt



Um­boðs­maður Alþingis birti á föstu­dag ­nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­unar sinnar á sam­skiptum Hönnu Birnu og Stef­áns Eiríks­son, fyrrum lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, vegna rann­sóknar leka­máls­ins svo­kall­aða. Þar sagði meðal ann­ars að að ráð­herra hafi far­ið langt út fyrir vald­svið sitt í sam­skipt­un­um. Málið er nú á borði stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþing­is.

Umboðs­maður segir að afstaða Hönnu Birnu til athug­unar hans hafi breyst eftir að hún sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra í lok nóv­em­ber 2014. „Eftir það hefur hann [ráð­herr­ann fyrr­ver­andi] lýst því í bréfi til mín 8. jan­úar 2015 að það hafi verið mis­tök af hans hálfu að eiga sam­skipti við lög­reglu­stjór­ann vegna lög­reglu­rann­sókn­ar­innar meðan hún stóð yfir. Í sama bréfi kemur einnig fram breytt afstaða til þess hvert hafi verið efni sam­skipt­anna við lög­reglu­stjór­ann og til laga­reglna sem reynir á í mál­inu frá því sem komið hafði fram í fyrri svörum ráð­herra og skýr­ing­um.“

Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrrum aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu, var dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi í nóv­em­ber 2014 fyrir að leka minn­is­blaði um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos til mbl.is og Frétta­blaðs­ins í nóv­em­ber 2013. Gísli Freyr ját­aði brotið dag­inn áður en mál hans fór fyrir dóm.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None