Heiða Kristín á þing í haust og hugsar stíft næstu daga um formannsframboð

15594023008-836b8fe03a-z.jpg
Auglýsing

Heiða Kristín Helga­dótt­ir, annar stofn­enda Bjartrar fram­tíðar og vara­þing­maður flokks­ins, ætlar að taka sæti á þingi í haust. Hún tekur sæti Bjartar Ólafs­dóttur sem fer í fæð­ing­ar­or­lof. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Heiða Kristín hefur tekið þessa ákvörðun í kjöl­far þess að Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður flokks­ins, hefur ákveðið að stíga til hliðar á aðal­fundi flokks­ins í byrjun næsta mán­að­ar. Róbert Mars­hall mun einnig segja af sér sem þing­flokks­for­maður flokks­ins. Er þetta sam­eig­in­leg ákvörðun þeirra og vilja þeir með þessu veita öðrum svig­rúm til að stýra flokkn­um, að því er kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Heiða er ánægð með ákvörð­un­ina og segir þá Guð­mund og Róbert menn að meiri. „Ég er bara ánægð með að þeir hafi tekið það til sín sem hefur verið rætt í flokknum og mér finnst þeir bara menn að meiri að taka ábyrgð á stöð­unni eins og hún er. Og það er í sjálfu sér það sem ég var að fara fram á og að það færu fram heið­ar­legar umræður um hvert við stefnd­um,“ segir hún við RÚV.

Auglýsing

Hún ætlar að verða borg­ar­þing­maður og halda borg­ar­sjón­ar­miðum á lofti, enda finn­ist henni þau skipta mestu máli fyrir fram­tíð­ina.

Á fundi sem Björt fram­tíð hélt síð­ast­lið­inn fimmtu­dag var nafni Bryn­hildar Pét­urs­dótt­ur, þing­manns flokks­ins, velt upp sem mögu­legum næsta for­manni. Hún segir við Frétta­blaðið að hún gæti hugsað sér að skoða þann mögu­leika.

Heiða hefur áður sagst vera að íhuga að bjóða sig fram til for­manns og hún ætlar í kjöl­far ákvörð­unar Guð­mundar að hugsa stíft um það næstu daga hvort hún tekur þann slag.

„Ég hef ekki tekið end­an­lega ákvörðun um það. Ég hef líka hvatt konur í flokknum til að stíga fram að taka for­ystu og myndi fagna því. Mér fynd­ist það líka heil­brigt ef það yrðu nokkur fram­boð.“

Gagn­rýnin setti allt af stað



Nokkur óánægja hefur verið með gang mála innan Bjartrar fram­tíðar und­an­farin miss­eri, og gagn­rýndi Heiða Krist­ín, sem áður var í for­ystu flokks­ins, Guð­mund for­mann ­vegna slæmrar stöðu flokks­ins í við­tali við Kjarn­ann, en flokk­ur­inn mælist nú með aðeins 4,4 pró­sent fylgi.

Miðað við það fylgi myndi Björt fram­tíð ekki ná inn manni í kom­andi kosn­ing­um. ­Flokk­ur­inn mæld­ist með um 20 pró­sent fylgi í könn­unum  í fyrra­haust.

Í kjöl­far gagn­rýni sinnar á Guð­mund sagð­ist Heiða Kristín opin fyrir því að sækj­ast eftir for­manns­emb­ætt­inu ef vilji væri fyrir því hjá flokks­mönn­um. Guð­mundur til­kynnti í byrjun síð­ustu viku að hann hefði engan áhuga á for­manns­slag og myndi leggja fram til­lögu um að æðstu emb­ætti flokks­ins myndu róter­ast. Þá til­lögu ætlar hann ennþá að leggja fram á árs­fundi Bjartrar fram­tíðar í byrjun sept­em­ber. Verði sú til­laga sam­þykkt mun starf for­manns og þing­flokks­for­manns róter­ast á milli sex þing­manna Bjartrar fram­tíðar en aðrir gegna starfi stjórn­ar­for­manns.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None