Heiðrún Lind: Engar vísbendingar um skaðleg áhrif samþjöppunar í sjávarútvegi

Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir „örðugt að skilja hvað átt er við þegar rætt er um að samþjöppun sé jafnvel orðin of mikil í sjávarútvegi. Ef litið er til viðmiða samkeppnisréttarins telst samþjöppunin ekki skaðleg“.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Svandís Svavarsdóttir.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Svandís Svavarsdóttir.
Auglýsing

Ljóst er að sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi er hvergi nærri við­miðum sam­keppn­is­réttar sem gefa vís­bend­ingu um að hún sé orðin skað­leg.

Þetta skrifar Heiðrún Lind Mart­eins­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, í grein á vef sam­tak­anna.

„Sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi var lífs­nauð­syn­leg og hún hefur sann­ar­lega verið tölu­verð á umliðnum árum. Það er þessi þróun sem leiddi til þess að sjáv­ar­út­vegur er í dag horn­steinn margra byggð­ar­laga, drif­kraftur atvinnu allt árið um kring og upp­spretta þekk­ingar og nýsköp­un­ar. Þessi staða er ekki til­vilj­un, hún skap­að­ist vegna þess að sjáv­ar­út­vegur fékk svig­rúm til að efl­ast og njóta hag­kvæmni stærð­ar. Þannig hefur allt sam­fé­lagið notið góðs af. Á vett­vangi stjórn­mál­anna hlýtur verk­efnið að fel­ast í því að treysta að svo verði áfram.“

Auglýsing

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála, sagði í síð­ustu viku að taka þyrfti til hend­inni hvað varði sam­þjöppun valds og auð­magns í kvóta­kerf­inu. Sagði hún að í sjón­varps­þátt­unum Ver­búð­inni hafi áhorf­endur séð „óþægi­lega gott dæmi“ um það þegar stjórn­málin og við­skiptin fara í eina sæng „og úr því verður kjör­lendi fyrir spill­ingu, fyrir þróun sem að verður erfið og kemur niður á öllum almenn­ing­i“.

Ráð­herr­ann sagði að í grunn­inn væri sjáv­ar­ú­veg­ur­inn að ganga vel. Kvóta­kerfið hefði komið til vegna þess að nauð­syn­legt var að vernda fiski­stofn­ana og koma í veg fyrir offjár­fest­ingu í grein­inni. „Sumir hlutar kerf­is­ins hafa algjör­lega þjónað þeim mark­mið­u­m.“

Hins vegar sagði hún „of fáa hafa orðið of ríka“ og að sjáv­ar­pláss hefðu sum hver „í raun og veru algjör­lega liðið fyrir þessa kerf­is­breyt­ingu. Þetta þýðir það að við þurfum að taka til hend­inni að því er varðar sam­þjöppun valds og sam­þjöppun auð­magns í þessu kerf­i.“

Til­teknar breyt­ingar væri hægt að gera strax, m.a. að skerpa á eft­ir­liti og hefur Svan­dís þegar hafið þá vinnu. En síðan þurfi að taka kerfið í heild til end­ur­skoð­un­ar, í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mál­ann.

Sér­stakt að setja skorður á útflutn­ings­grein

Heiðrún Lind segir í grein sinni að „nauð­syn­leg sam­þjöppun og hag­ræð­ing“ hafi verið ein ástæða þess að fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu var komið á. „Nú þykir sumum nóg kom­ið, hag­ræð­ingin hafi gengið of lang­t,“ skrifar hún og því sé mik­il­vægt að varpa ljósi á hver sam­þjöpp­unin raun­veru­lega sé. „Mér segir svo hugur að það átti sig ekki allir á því.”

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn selur um 98 pró­sent afurða sinna á erlenda mark­aði og skrifar Heiðrún Lind að það sé „að vissu leyti sér­stakt, út frá sam­keppn­is­legum sjón­ar­mið­um, að setja skorður á útflutn­ings­grein“.

Þegar afla­heim­ildir þriggja stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna séu lagðar sam­an, þá sé hlut­deild þeirra ríf­lega 23 pró­sent af heild­ar­verð­mæti afla­hlut­deilda allra teg­unda. „Sam­þjöppun í þess­ari starf­semi er því víðs fjarri þeirri sam­þjöppun sem tíðkast á mik­il­vægum íslenskum neyt­enda­mörk­uð­u­m,“ segir Heiðrún Lind. „Því er örð­ugt að skilja hvað átt er við þegar rætt er um að sam­þjöppun sé jafn­vel orðin of mikil í sjáv­ar­út­vegi. Ef litið er til við­miða sam­keppn­is­rétt­ar­ins telst sam­þjöpp­unin ekki skað­leg. Og hún er reyndar langt frá því.“

Lögin eru skýr

Til að veiða fisk í íslenskri lög­sögu þarf að kom­ast yfir úthlut­aðan kvóta sem úthlutað er í sam­ræmi við lög um stjórn fisk­veiða. Umrædd lög eru skýr. Þau segja að eng­inn hópur tengdra aðila megi halda á meira en tólf pró­sent af heild­ar­afla. Þau mörk eiga að koma í veg fyrir of mikla sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi á meðal þeirra fyr­ir­tækja sem fá að vera vörslu­að­ili fiski­mið­anna, sem eru sam­kvæmt lögum þó ekki eign þeirra heldur þjóð­ar­inn­ar.

Auglýsing

Til að telj­ast tengdur aðili er þó gerð krafa um meiri­hluta­eign eða raun­veru­leg yfir­ráð. Í því felst að aðili þurfi að eiga meira en 50 pró­sent í öðrum aðila eða ráða yfir honum með öðrum hætti til að þeir séu taldir tengdir aðil­ar. Þau mörk hafa verið harð­lega gagn­rýnd, enda mjög há í öllum sam­an­burði.

Mikil sam­þjöppun hefur átt sér stað í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi á und­an­förnum ára­tug­um, eftir að fram­sal kvóta var gefið frjálst og sér­stak­lega eftir að heim­ilt var að veð­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lán­um, þótt útgerð­ar­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóð­in. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Tíu stærstu með rúm­lega 67 pró­sent kvót­ans

Haustið 2020 héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins sam­an­lagt á 53 pró­sentum af úthlut­uðum kvóta, en Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber í fyrra að það hlut­fall væri komið upp í rúm­lega 67 pró­sent.

Sam­hliða þess­ari þróun hefur hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja auk­ist gríð­ar­lega. Hagn­aður geirans fyrir skatta og gjöld frá byrjun árs 2009 og út árið 2020 var alls um 665 millj­arðar króna, sam­kvæmt sjáv­ar­út­vegs gagna­grunni Deloitte. Af þeirri upp­hæð fór undir 30 pró­sent til íslenskra rík­is­ins, eig­anda auð­lind­ar­inn­ar, í formi tekju­skatts, trygg­inga­gjalds og veiði­gjalda. En rúm­lega 70 pró­sent sat eftir hjá eig­endum fyr­ir­tækj­anna.

Fjórar blokkir með meiri­hluta kvót­ans

Þegar Fiski­stofa birti síð­ast tölur um sam­þjöppun afla­heim­ilda var eitt fyr­ir­tæki yfir þeim lög­bundnu tólf pró­sent hámarki, Brim sem skráð er á íslenskan hluta­bréfa­mark­að. Brim leysti úr þeirri stöðu 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þegar það seldi afla­hlut­deild fyrir 3,4 millj­arða króna til Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur. Eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur, Guð­mundur Krist­jáns­son, er for­stjóri Brim og stærsti ein­staki eig­andi þess fyr­ir­tæk­is.

Fjórar blokkir, kenndar við Sam­herja, Brim, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Ísfé­lag­ið, halda á rúm­lega 60 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta á Íslandi en aðilar innan þeirra eru ekki í öllum til­vikum skil­greindir sem tengdir sam­kvæmt gild­andi lög­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent