Heimildarmynd um nauðgun og morð í Indlandi bönnuð

indl.png
Auglýsing

Ind­versk stjórn­völd hafa bannað sýn­ingu á heim­ild­ar­mynd­inni Indi­a's Daughter, sem fjallar um nauðgun og morð á hinni 23 ára gömlu Jyoti Singh í Delhi í lok árs 2012. Þau ætla jafn­framt að reyna að koma í veg fyrir að myndin verði sýnd ann­ars staðar í heim­in­um, að sögn inn­an­rík­is­ráð­herra Ind­lands, Rajn­ath Singh, sem tal­aði um málið í ind­verska þing­inu. Hann segir að eng­inn fái að nýta sér atburð­inn á nokkurn hátt.

Frum­sýna á mynd­ina á sunnu­dag­inn, en sunnu­dag­inn ber upp á 8. mars sem er alþjóð­legur bar­áttu­dagur kvenna. ­Myndin markar einnig upp­haf víð­tækrar her­ferðar gegn ofbeldi gegn kon­um. Sýna átti hana í Ind­landi og sjö öðrum löndum á sunnu­dag­inn, þar á meðal á BBC4 í Bret­landi. Búið er að fara þess á leit við BBC að myndin verði ekki sýnd, en við því verður ekki orðið að sögn tals­konu BBC. Þá á að sýna mynd­ina víðar næstu daga á eft­ir.

Aðgengi að nauð­gara for­dæma­laust



Inn­an­rík­is­ráð­herr­ann Rajn­ath Singh segir jafn­framt að hann muni láta rann­saka hvernig aðstand­endur mynd­ar­innar hafi fengið að fara inn í fang­elsi og tala við fanga á dauða­deild, en í mynd­inni er rætt við einn nauð­gar­anna, Mukesh Singh. Hann sýnir ekki nokkra iðrun í við­tal­inu heldur kennir fórn­ar­lamb­inu um. Hún hafi ekki hagað sér eins og konu sæmi og að ef hún hefði ekki barist gegn nauðg­un­inni hefði hún ekki verið myrt.

Breska kvik­mynda­gerð­ar­konan Leslee Udwin gerði mynd­ina og hún ætlar að berj­ast gegn lög­bann­inu á mynd­ina. Hún segir að bæði fang­elsið og ráðu­neytið hafi gefið leyfi fyrir við­tal­inu og að hún hafi sýnt fang­els­is­yf­ir­völdum við­tölin eftir á. Aðgangur hennar að fang­els­inu er næstum for­dæma­laus, hún tók við­tal við nauð­gar­ann í sextán klukku­stundir yfir þriggja daga tíma­bil. Mann­rétt­inda­sam­tök fá sjaldn­ast aðgang að fang­elsum lands­ins, hvað þá að mynda þar, og hefur þetta vakið athygli margra.

Auglýsing

Lög­regla fór fram á lög­bann á mynd­ina vegna ummæla Mukesh Singh í henni, sem lög­regla segir að veki upp and­rúms­loft ótta og spennu og að ummælin geti valdið háværum mót­mælum og óeirð­um.

Ekki hægt að horfa fram­hjá vand­anum



Annar ráð­herra, Venkaiah Nai­du, segir að myndin sé í raun alþjóð­legt sam­særi sem snú­ist um að rægja Ind­land og að ríkið myndi bíða skaða af því að myndin verði sýnd um heim­inn.

Þing­konan Anu Agha seg­ir hins vegar að bann við mynd­inni sé ekki svar­ið. „Við verðum að takast á við það vanda­mál að margir karlar í Ind­landi bera ekki virð­ingu fyrir kon­um. Það sem nauð­gar­inn sagði er við­horf margra karla í Ind­landi. Af hverju erum við að forð­ast þetta? Verum með­vituð og látum ekki eins og allt sé í lag­i,“ sagði hún í dag.

Tals­kona BBC hefur einnig tjáð sig um málið og sagt að þessi átak­an­lega mynd veiti inn­sýn inn í hræði­legan glæp, sem þó leiddi til umfangs­mik­illa mót­mæla þar sem þess var kraf­ist að við­horf gagn­vart konum breyt­ist.

Udwin sjálf hefur talað á svip­uðum nót­um. Hún hefur sagt að Ind­verjar ættu í raun að fagna mynd­inni, nú sé komið tæki­færi fyrir Ind­land til að halda áfram að sýna heim­inum hversu mikið hefði breyst eftir þennan sví­virði­lega glæp. „Því miður mun bann mynd­ar­innar ein­angra landið í augum heims­ins. Það mun hafa þver­öfug áhrif.“

BBC segir að margir taki undir þennan mál­flutn­ing, það komi ekki vel út fyrir stjórn­völd að líta út fyrir að vera á móti tján­ing­ar­frels­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None