Helgi Hrafn segir Pírata stjórntæka - Lofar ákveðna ráðherra en gagnrýnir aðra

Helgi.Hrafn_.8.jpg
Auglýsing

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, for­mað­ur­ P­írata, segir flokk­inn vera stjórn­tæk­an. Í við­tali við Við­skipta­blaðið í dag segir Helgi Hrafn ­spurn­ing­una vera áhuga­verða, því fólk gefi sér að flokkar séu annað hvort stjórn­tækir eða ekki. Það sem skipti máli þegar kemur að rík­is­stjórn sé að hæft fólks sé innan flokka. „Það eru núna til­ ­staðar mjög óhæfir ráð­herr­ar, og mjög hæfir ráð­herrar lík­a,“ segir hann í við­tal­inu. Helgi Hrafn nefnir þrjá ráð­herra sér­stak­lega sem honum finnst hæfir í starfi. Nokkrir aðrir ráð­herra séu aftur á móti ekki með á nót­un­um.

„Ég er til dæmis alveg algjör­lega blygð­un­ar­laust aðdá­andi Ólafar Nor­dal, sem mér finnst frá­bær ráð­herra. Ill­uga Gunn­ars­syni er ég oft ósam­mála, en ég ber virð­ingu fyrir því hvernig hann nálg­ast suma hluti. Bjarni Bene­dikts­son er mjög góð­ur, þótt ég sé mjög ósam­mála hans nálgun í mörgu eins og efna­hags­málum – eða stundum er ég sam­mála honum – en hann sýnir þing­inu virð­ingu, hann er góður ráð­herra í sjálfu sér­, ef maður er sam­mála hon­um. Svo eru alveg til ráð­herrar sem eru bara ekk­ert með á nót­un­um. Þannig að þetta er ekk­ert spurn­ing um flokka að mínu mati, þetta er bara spurn­ing um að fá rétta fólkið í starf­ið.“

Spurður um hvaða ráð­herra hann sé að vísa til nefnir Helgi Hrafn for­sæt­is­ráð­herra sér­stak­lega, Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son.

Auglýsing

„Sem mér er svona illa við? Mér leið­ist nú að tala illa um fólk en ég skal alveg segja þér hrein­skiln­is­lega að það hvernig hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra kemur fram við ­þingið er óþol­andi og óbjóð­andi. Ég er eig­in­lega algjör­lega hættur að reyna að ­sykra það eitt­hvað. Hvernig þessi for­sæt­is­ráð­herra kemur fram við þingið er bara ekki í lagi, við eigum ekki að láta eins og það sé í lag­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None