Hjartað í Vatnsmýri: Áhætta eykst með lokun flugbrautar og rekstraröryggi skerðist

15423252458_ba83196f85_z.jpg
Auglýsing

Sam­tökin Hjartað í Vatns­mýri segja áhættu­mat Isa­via á lokun flug­braut­ar­innar 06/24 á Reykja­vík­ur­flug­velli sýna svart á hvítu að áhætta auk­ist ef braut­inni verði lokað og að rekstr­ar­ör­yggi vall­ar­ins skerð­ist mjög. Í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum segir enn­fremur að nið­ur­stöður mats­ins sýni að áhætta við lokun braut­ar­inn­ar, sem flokkuð er í flokki B og er kölluð „þol­an­leg“, sé þvert á mark­mið um öruggar sam­göngur þar sem stöðugt sé unnið að því að auka öryggi en ekki draga úr því og að flug­far­þegar og sjúk­lingar muni ekki sætta sig við að fara úr frá­bæru flug­ör­yggi niður í þol­an­legt.

Sam­tökin vísa til áhættu­mats Isa­via sem nýlega var birt á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Í skýrsl­unni kemur meðal ann­ars fram það mat að hverf­andi líkur séu á því að slys verði vegna lok­unar flug­braut­ar­innar, sem oft er kölluð vara­flug­braut­in, þriðja flug­brautin eða neyð­ar­braut­in.

Auglýsing


Frið­rik Páls­son, annar for­manna Hjart­ans í Vatns­mýri, segir lokun braut­ar­innar hafa mikil áhrif á flug­ör­yggi og því leggi áhættu­mats­hópur Isa­via til ýmsar mild­un­ar­ráð­staf­an­ir. „Ljóst er af þeim til­lögum að reynt er að dempa hina auknu áhættu án þess þó að eyða henni. Slík nið­ur­staða er með öllu óásætt­an­leg fyrir far­þega í inn­an­lands­flugi og sýnir vel mik­il­vægi neyð­ar­braut­ar­inn­ar. Það verður aldrei sátt um minna flug­ör­ygg­i.“



Í til­kynn­ingu er einnig haft eftir Njáli Trausta Frið­berts­syni, hinum for­manni sam­tak­anna, að ákvörðun um lokun flug­braut­ar­innar hafi ekki verið tekin og að not­hæf­is­stuð­ull vall­ar­ins muni lækka veru­lega við lok­un. „Önnur af meg­in­nið­ur­stöðum Rögnu­nefnd­ar­innar var að tryggja rekstr­ar­ör­yggi Reykja­vík­ur­vallar uns full­könnun og/eða fram­kvæmdum við nýjan flug­völl væri lok­ið. Það er ljóst af áhættu­mati Isa­via að engin leið er að loka braut­inni og tryggja um leið óbreytt flug­ör­yggi og rekstr­ar­ör­yggi vall­ar­ins.“ segir Njáll Trausti.



Einnig kemur fram í til­kynn­ing­unni:



„Hjartað í Vatns­mýri bendir jafn­framt á að ýmsir ágallar séu á áhættu­mat­inu. Strax í öðrum kafla áhættu­mats­ins koma fram alvar­legir þættir og segir þar orð­rétt „þetta áhættu­mat tekur ekki á áhrifum á flug­vall­ar­kerfið í land­inu, neyð­ar­skipu­lag almanna­varna [eða] sjúkra­flutn­inga“.  Við svo bæt­ist að not­hæf­is­stuð­ull sé rang­lega reikn­aður þar sem áhrifa bremsu­skil­yrða og vind­hviða sé með öllu sleppt en það séu stærstu og alvar­leg­ustu áhættu­þættir við lend­ingar flug­véla að vetr­ar­lagi í erf­iðum aðstæð­um. Þá er bent á að áhættu­mats­hóp­ur­inn sé alfarið skip­aður starfs­mönnum Isa­via og að aðkoma rekstr­ar­að­ila og not­endum vall­ar­ins hafi verið eng­in. Þá er bent á að Isa­via hafi leyst upp fyrri áhættu­mats­hóp reyndra sér­fræð­inga og flug­stjóra sem lendi á vell­inum árið um kring þegar í ljós kom að þeir töldu áhætt­una við lokun braut­ar­innar óásætt­an­lega.



Hjartað í Vatns­mýri segir einnig að „frá­leitt sé að færa Reykja­vík­ur­völl niður í örygg­is­málum á meðan unnið sé að því að bæta öryggi á öllum öðrum sviðum í sam­göngu­málum Íslend­inga. Flugið er lífæð lands­ins og ætti eng­inn að sætta sig við minna öryggi í flugi til þess eins að þjóna hags­munum eins verk­taka á Hlíð­ar­enda­svæð­in­u.”“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None