Hjartavöðvabólga tengd mRNA bóluefnum – Ekki mælt með bólusetningu hraustra barna

Lyfjastofnun Evrópu hefur staðfest aukna tíðni gollurshússbólgu og hjartavöðvabólgu eftir bólusetningar með efnum Moderna og Pfizer. Fáein slík tilfelli hafa komið upp hér á landi. Sóttvarnalæknir mælir ekki með bólusetningum hraustra barna í bili.

Bóluefni Pfizer og Moderna eru framleidd með svokallaðri mRNA-tækni.
Bóluefni Pfizer og Moderna eru framleidd með svokallaðri mRNA-tækni.
Auglýsing

Sótt­varna­læknir ætlar ekki að mæla með almennum bólu­setn­ingum hraustra barna að svo stöddu. Lyfja­stofnun Evr­ópu (EMA) hefur skorið úr um að aukin tíðni goll­urs­húss­bólgu (e. per­icar­di­tit­is) og hjarta­vöðva­bólgu (e. myocar­dit­is) sé eftir bólu­setn­ingu með mRNA bólu­efn­unum Com­irnaty (Pfiz­er/BioNTech) og Spi­ke­vax (Moderna). Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sótt­varna­lækni sem birt er á vef Land­lækn­is.

Þótt þessar auka­verk­anir virð­ist fátíðar sam­kvæmt grein­ar­gerð EMA (u.þ.b. 1 til­vik/100.000 skammta) þá hafa fáein til­vik komið upp hér á landi sam­kvæmt sam­skiptum lækna Land­spít­ala við emb­ætti land­lækn­is. Slík atvik virð­ast algeng­ust hjá ungum karl­mönnum og eftir seinni skammt en til hjá öllum kynj­um, á öllum aldri og hafa komið upp eftir fyrri skammt, segir í til­kynn­ingu sótt­varna­lækn­is.

Sjúk­dóms­gangur er sagður svip­aður og við goll­urs­húss­bólgur og hjarta­vöðva­bólgur af öðrum orsök­um, en í ein­hverjum til­vikum hefur þurft með­ferð á sjúkra­húsi, jafn­vel á gjör­gæslu. Sam­kvæmt grein­ar­gerð EMA hafa orðið 5 dauðs­föll í tengslum við þessa auka­verkun í Evr­ópu, hjá öldruðum ein­stak­lingum og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

Auglýsing

Ein­stak­lingar sem fá mRNA bólu­efni og taka eftir eft­ir­far­andi ein­kennum innan 2ja vikna frá bólu­setn­ingu ættu að leita sér lækn­is­að­stoð­ar:

  • Mæði
  • Þungur og/eða óreglu­legur hjart­sláttur
  • Brjóst­verkur

Þar til nán­ari upp­lýs­ingar um tíðni og sjúk­dóms­gang goll­urs­húss­bólgu og hjarta­vöðva­bólgu eftir mRNA bólu­setn­ingu barna við COVID-19 liggja fyr­ir, og á meðan smit­hætta vegna COVID-19 er hverf­andi hér­lendis er að sögn sótt­varna­læknis „ekki hægt að úti­loka að hætta á alvar­legum auka­verk­unum sé meiri en hætta á alvar­legum veik­indum vegna COVID-19 hjá hraustum börn­um. Því verður ekki mælt með almennum bólu­setn­ingum hraustra barna 12-15 ára við COVID-19 að svo stödd­u“.

For­eldrar munu geta óskað eftir bólu­setn­ingu barna sinna á ein­stak­lings­grund­velli eftir sum­ar­leyfi heilsu­gæslu. Mælt er með að börn með áhættu­þætti með til­liti til alvar­legra veik­inda vegna COVID-19 séu bólu­sett.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent