Hjartnæm ræða Jónasar Sig við borgaralega fermingu vekur athygli

J.nas_.Sigur_.sson_.jpg
Auglýsing

Tón­list­ar­mað­ur­inn Jónas Sig­urðs­son flutt­i hjart­næma ræðu við borg­ara­lega ferm­ingu í Reykja­nesbæ um helg­ina, sem hefur vakið athygli á net­inu og farið víða. Rúm­lega þús­und manns hafa til að mynda „lækað“ ræð­una á vef­síðu Sið­menntar.

Í ræðu sinni brýndi Jónas fyrir ferm­ing­ar­börn­unum að vera þau sjálf og sagði: „Það hefur lík­lega sjaldan verið eins flókið að vera ung­lingur eins og núna. Heim­ur­inn hefur breyst svo mik­ið. Þið hafið lík­lega mesta frelsi sem nokkur kyn­slóð ungs fólks hefur haft á Íslandi. Þið hafið aðgang að ótrú­leg­ustu upp­lýs­ing­um. Bæði að öllu því fal­lega þarna úti sem fólk er að gera og einnig því ljóta. Í þessu fel­ast mikil tæki­færi en um leið miklar áskor­an­ir.“

„Slakið á, þið eruð frá­bær ­ná­kvæm­lega svona“



Þá fjall­aði tón­list­ar­mað­ur­inn um þá miklu mark­aðs­setn­ingu sem beint er gegn ungu fólki og hvernig hún geti gefið ranga mynd af líf­inu og haft áhrif á for­gangs­röð­un. „En maður veit bara oft ekk­ert svo vel hvað manni langar að gera eða verða. Þess vegna segi ég aftur við ykk­ur: Slakið á. Þið eruð algjör­lega frá­bær nákvæm­lega svona. Bara hlusta á hjartað og vera maður sjálf­ur. Í góðum fíl­ing.”

Þá hvatti Jónas ferm­ing­ar­börnin til að hætta aldrei að spyrja spurn­inga, og veita „full­orðna“ fólk­inu aðhald. „Málið er að ungt fólk eins og þið eruð algjör­lega nauð­syn­leg til að koma hreyf­inga á hlut­ina. Ungt fólk spyr nefni­lega spurn­inga eins og „AF HVERJU?“ Full­orðna fólkið svarar þá gjarnan „ÞETTA ER BARA SVONA,  HÆTTU AÐ SPYRJ­A.“  En ég segi .. aldrei hætta að spyrja. Við þurfum að spyrja eins og börn: af hverju eiga sumir ekki fyrir mat? Af hverju svelta sum börn? Af hverju eru sumir full­orðnir svona pirraðir og óþol­in­móð­ir? Af hverju þurfa bankar að græða svona mik­ið? Þarf maður að vinna ef manni finnst það leið­in­legt? Af hverju þarf maður yfir höfuð að gera eitt­hvað leið­in­leg­t?“

Auglýsing

Bannað að hugsa illa um sjálfan sig



Þá gaf tón­list­ar­mað­ur­inn ferm­ing­ar­börn­unum heil­ræði út í líf­ið. „Það er: Bannað að hugsa illa um sjálfan sig, bannað að horfa í spegil og hugsa „ekki nógu gott,“ bannað að vera sig saman við aðra, helst að vera í góðum fíl­ing og hlusta á það hvernig manni líð­ur, aldrei láta neinn tala sig út í að gera eitt­hvað sem manni líður ekki vel með, og að lokum að koma fram við alla aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Sem sagt umgang­ast aðra eftir þessum sömu reglum og þið umgang­ist ykkur sjálf.“

„Þegar þú hins­vegar verður besta útgáfan af sjálfum þér og lifir í friði við guð og menn þá tapar eng­inn. Svo getur maður nefni­lega sett sér mark­mið og notið þess að ná mark­miðum sín­um. En það er þá ekki til að sanna fyrir heim­inum að maður sé ein­hvers virði. Heldur ein­fald­lega til að njóta lífs­ins og hafa gaman af þessum tíma sem okkur er úthlutað í þessum stór­merki­lega og skrýtna heimi umkringd frá­bæru fólki eins og ykk­ur. Og það merki­lega er að þannig breytum við heim­inum lík­a,“ sagði Jónas Sig­urðs­son tón­list­ar­maður í ræðu sinni við borg­ara­lega ferm­ingu Sið­menntar í Reykja­nesbæ á laug­ar­dag­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None