Hjúkrunarfræðingi frá Íslandi hrósað fyrir snör handtök eftir hræðilegt bílslys í Danmörku

1280px.Car_Accident.jpg
Auglýsing

46 ára þýskur karla­maður ligg­ur þungt hald­inn í lífs­hættu eftir alvar­legt bílslys við bæinn Gråsten á Jót­landi í gær. Lög­reglu­yf­ir­völd þakka veg­far­endum sem komu að slys­inu fyrir snör hand­tök á slys­stað, og þá sér­stak­lega ungri íslenskri konu sem var á meðal þeirra, ­sem er hjúkr­un­ar­fræð­ingur að mennt. Danski frétta­mið­ill­inn Jydske Vest­kysten greinir frá mál­inu á vef­síðu sinni.

Tveir fólks­bílar skullu saman á Krusåvej skammt frá Gråst­en. Í öðrum bílnum voru tveir Þjóð­verjar og dönsk hjón í hin­um, kona á sjö­tugs­aldri og karl­maður á sex­tugs­aldri. Bíl­arnir skullu saman þegar Þjóð­verjarnir reyndu fram­úr­akst­ur. Fjór­menn­ing­arnir slös­uð­ust allir í árekstr­in­um, fjórir sjúkra­bílar voru sendir á vett­vang, en þá sátu tveir far­þegar fastir í bíl­un­um. Tækja­bíll var not­aður til að skera þá lausa, en þá höfðu hinir tveir far­þeg­arnir verið fjar­lægðir úr bíl­unum við illan leik.

Íslenskur hjúkr­un­ar­fræð­ingur tók við stjórn­inni á slys­stað



Eins og áður greinir er annar Þjóð­verj­inn í lífs­hættu eftir slysið en landi hans, 52 ára karl­maður sem ók bíln­um, er alvar­lega slas­aður en þó ekki í lífs­hætt­u. Þá er danska konan sömu­leiðis alvar­lega slös­uð, en eig­in­maður hennar slas­að­ist minna.

Danski frétta­mið­ill­inn hefur eftir yfir­manni hjá lög­regl­unni í Gråsten að við­brögð veg­far­enda á slys­stað­hafi skipt sköp­um. „Þegar við komum á vett­vang voru tíu til tólf veg­far­endur á vett­vangi sem voru að huga að hinum slös­uð­u,“ seg­ir lög­reglu­mað­ur­inn Erik Lind­holdt í sam­tali við Jydske Vest­kysten. „Þeim var stjórnað af ungri konu, hjúkr­un­ar­fræð­ingi frá Íslandi, sem stóð sig stór­kost­lega. Hún var ekki fyrst á vett­vang en skipu­lagði björg­un­ar­starfið og bjarg­aði þar með því sem bjargað varð. Allir sem voru á staðnum eiga mikið lof skil­ið, þeirra fram­lag kann að hafa skipt sköp­um.“

Auglýsing

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None