Hlín vill fá aðgang að tölvupóstinum sínum hjá Vefpressunni til að nota í fjárkúgunarmálinu

bjorninginota-1.jpg
Auglýsing

Hlín Ein­ars­dótt­ir, önnur systr­anna sem er grunuð um að reyna að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra, vill fá aðgang að tölvu­póst­hólfi sínu hjá Vef­press­unni til að nota í þeim mála­ferlum sem framundan eru vegna máls­ins og nauðg­un­ar­á­kæru gagn­vart fyrrum sam­starfs­manni henn­ar. Vef­pressan er meðal ann­ars í eigu Björns Inga Hrafns­son­ar, fyrrum sam­býl­is­manns Hlín­ar. Þetta kemur fram í frétt á Stund­inni.

Hlín var, ásamt systur sinni Malín Brand, hand­tekin nýverið fyrir að reyna að kúga fé út úr Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra. Fjár­kúg­unin gekk út á meint óeðli­leg tengsl Björns Inga við for­sæt­is­ráð­herra. Eftir að málið komst í hámæli lok­uðu stjórn­endur Pressunn­ar, eig­endur Vef­pressunn­ar, á net­fang Hlín­ar, en hún var lengi rit­stjóri Bleikt.is, vef­mið­ils í eigu fyr­ir­tæk­is­ins.

Hlín segir í sam­tali við Stund­ina að hún telji sig eiga fullan rétt á aðgengi að þessum gögnum sem séu að stórum hluta per­sónu­leg. „Ég krefst þess að fá aðgang að tölvu­pósti mínum en stjórn­endur Vef­pressunnar eru að draga lapp­irn­ar. Það er mjög dul­ar­fullt að þeir skuli neita að afhenda mér gögn­in,” segir Hlín við Stund­ina.

Auglýsing

Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig um þau tvö mál tengd henni sem hafa verið í hámæli und­an­farnar vik­ur, meinta fjár­kúgun gagn­vart for­sæt­is­ráð­herra og meinta nauðgun sem hún hafi orðið fyrir af hendi fyrrum sam­starfs­fé­laga síns. Hún segir þó að í póst­hólfi hennar sé að finna póst til Björns Inga Hrafns­sonar þar sem hún segir frá meintri nauðgun fljót­lega eftir atburð­inn. Sá sem ásak­aður er um nauðg­un­ina hefur kært Hlín og systur hennar til lög­reglu fyrir fjár­kúg­un, en hann greiddi þeim 700 þús­und krónur gegn því að málið yrði ekki gert opin­bert.

Upp­lýs­ing­arnar sem áttu að koma Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra illa, og hótað var að gera opin­berar í fjár­kúg­un­ar­bréfi sem stílað var á eig­in­konu hans, snér­ust um að Sig­mundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan hafi fengið lána­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka.

Í umfjöllun Vísis um málið fyrir nokkrum dögum var rætt við Arnar Ægis­son, fram­kvæmda­stjóra Pressunn­ar, um rúm­lega 60 milljón króna hækkun á skuldum félags­ins á árinu 2013. Þar sagði hann að lík­lega væri um að ræða yfir­færslu á yfir­drætti sem var í eign­ar­halds­fé­lag­inu Vef­press­unni ehf. Hann stað­festi að yfir­drátt­ur­inn sé hjá MP banka.

Arnar hafn­aði hins vegar öllum tengslum Pressunnar við for­sæt­is­ráð­herra. Hann hafn­aði einnig að lána­fyr­ir­greiðsla MP banka hefði verið fengin að til­stillan Sig­mundar Dav­íðs eða aðilum tengdum hon­um.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None