Hlutabréfasjóðir stærri en árið 2007

Virði eigna hlutabréfasjóða og peningarmarkaðssjóða hefur rokið upp.

kauphöll
Auglýsing

Eignir hluta­bréfa­sjóða í rekstri banka og ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja námu alls um 105,7 millj­örðum króna í lok sept­em­ber 2015. Á einu ári hafa eignir þeirra auk­ist um 32,9 millj­arða króna og nema nú meiru en þær gerðu í júlí 2007, þegar þær stóðu hæst fyrir hrun. Taka skal fram að um er að ræða stærðir á verð­lagi hvers árs. 

Þetta sýna nýjar hag­tölur Seðla­banka Íslands um verð­bréfa- og fjár­fest­inga­sjóða og lána­fyr­ir­tæki. Línu­ritið hér að neðan sýnir eignir hluta­bréfa­sjóða frá árs­byrjun 2006. Eins og sjá má þá þurrk­uð­ust eignir þeirra nán­ast út í kjöl­far hruns­ins 2008 en hafa vaxið veru­lega, ekki síst á síð­ustu rúmu 12 mán­uð­um, sam­hliða miklum hækk­unum á inn­lendum hluta­bréfa­mark­aði. Á vef Keld­unnar má jafn­framt sjá yfir­lit yfir ávöxtun hluta­bréfa­sjóða, sem nemur í sumum til­vikum á bil­inu 40 til 50 pró­sentum á síð­ustu tólf mán­uð­um.

Eignir hlutabréfasjóða frá janúar 2006 til september 2015.

Auglýsing

Eignir verð­bréfa­sjóða alls námu um 200 millj­örðum króna í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. Auk mik­ils vaxtar hluta­bréfa­sjóða, sem juku eigna­stöðu sína um 6,6 millj­arða milli ágúst og sept­em­ber, þá hafa pen­inga­mark­aðs­sjóðir einnig stækkað mik­ið. Á síð­ustu tólf mán­uðum hafa eignir pen­inga­mark­aðs­sjóða, þ.e. skulda­bréfa­sjóða, auk­ist um 39,4 millj­arða króna. Eignir pen­inga­mark­aðs­sjóða í lok sept­em­ber 2015 námu um 77 millj­örðum króna, sam­kvæmt tölum Seðla­bank­ans.

Í lok sept­em­ber voru starf­andi 159 sjóð­ir, þar af 51 verð­bréfa­sjóð­ur, 52 fjár­fest­inga­sjóðir og 56 fjár­fest­inga­sjóð­ir. Níu af þessum sjóðum voru í slita­ferli en aðrir starf­andi. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None