Höfuðborgarsvæðið sameinast um nýjar almenningssamgöngur og þéttingu byggðar

10191439034_ca72667a9e_z.jpg
Auglýsing

Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa sam­ein­ast um stefnu og skipu­lag svæð­is­ins til árs­ins 2040. Hryggjar­stykkið í stefn­unni er að koma á fót nýju létt­lestar- eða hrað­vagna­kerfi sem á að verða raun­hæfur val­kostur í sam­göngum og á að gegna lyk­il­hlut­verki við að breyta ferða­venj­um. Þetta kerfi er nefnt Borg­ar­línan og mun tengja kjarna sveit­ar­fé­lag­anna.

Allar sveit­ar­stjórn­ir, í Garða­bæ, Hafn­ar­firði, Kjós­ar­hreppi, Kópa­vogi, Mos­fells­bæ, Reykja­vík og Sel­tjarn­ar­nesi, hafa sam­þykkt þetta nýja svæð­is­skipu­lag og Skipu­lags­stofnun hefur stað­fest það. Sam­kvæmt stefn­unni, sem heitir Höf­uð­borg­ar­svæðið 2040, munu sveit­ar­fé­lögin hafa með sér náið sam­starf auk þess sem stefnan er sam­eig­in­leg stefna í skipu­lags­málum og um hag­kvæman vöxt svæðs­ins næstu 25 árin. „Enda er höf­uð­borg­ar­svæðið eitt búsetu­svæði, einn atvinnu- og hús­næð­is­mark­aður með­ ­sam­eig­in­leg grunn­kerfi, úti­vist­ar­svæði, auð­lindir og nátt­úru.“

Vöxtur höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur verið mik­ill síð­ustu ára­tugi og byggðin hefur dreifst um óvenju stórt svæði, segir í stefnu sveit­ar­fé­lag­anna. „Fjölgun íbúa mun halda áfram og árið 2040 verða þeir farnir að nálg­ast 300.000, gangi spár eft­ir. Með auknum vexti blasa við flóknar áskor­an­ir, fyr­ir­séðar og ófyr­ir­séð­ar, sem íbúar svæð­is­ins standa frammi fyr­ir.“ Lyk­il­at­riði sé að vöxt­ur­inn sem er fyr­ir­séður verði hag­kvæmur og gangi ekki á umhverf­is­gæði þeirra sem búa fyrir á svæð­inu. „Það er því nauð­syn­legt að fyr­ir­sjá­an­legri fólks­fjölgun verði mætt án þess að bíla­um­ferð auk­ist í sama hlut­falli og án þess að óbyggt land verði brotið í sama mæli og gert var síð­ustu ára­tug­i.“

Auglýsing

Því verður Borg­ar­lín­unni hrundið í fram­kvæmd og vinna við það á að hefj­ast strax á næst­unni í sam­vinnu við Vega­gerð­ina.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None