Horft til læknasamningsins - Ekki fordæmi, segir forsætisráðherra

sigmundur.jpg
Auglýsing

For­ysta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar, og opin­berra stétta sem vinna að gerð nýrra kjara­samn­inga, horfir ekki síst til samn­inga sem íslensk stjórn­völd gerðu við lækna. Sam­kvæmt þeim samn­ingum hækk­uðu laun lækna um meira en 20 pró­sent. Ólafur Skúla­son, for­maður Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, stað­festi í sam­tali við Kjarn­ann að það væri ekk­ert leynd­ar­mál, að vinnu­mark­að­ur­inn horfði til samn­ings­ins við lækna þegar þegar það kæmi að kom­andi kjara­samn­ing­um. Mark­mið hjúkr­un­ar­fræð­inga væri til að mynda að ná fram 20 til 25 pró­sent hækkun á laun­um, og „leið­rétta“ launin til sam­ræmis við aðrar háskóla­mennt­aðar stéttir hjá hinu opin­ber­a. Um 45 samn­ingar eru komnir á end­ur­nýj­un­ar­tíma og hafa mark­mið aðild­ar­fé­laga verið að birt­ast á síð­ustu vik­um.

Í kröfu­gerð Starfs­greina­sam­bands­ins (SGS), sem er með sextán aðild­ar­fé­lög innan sinna vébanda og tólf þús­und félags­menn, kemur meðal ann­ars fram krafa um að lægstu laun verði hækkuð úr 214 þús­und í 300 þús­und, og að laun í greinum þar sem rekstur hefur verið árang­urs­rík­ur, meðal ann­ars í gjald­eyr­is­skap­andi greinum eins og þar seg­ir, hækki veru­lega. Er í þessu sam­bandi meðal ann­ars horft til hækk­ana sem háskóla­mennt­aðar stéttir hjá hinu opin­bera hafa feng­ið.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, sagði í grein í Morg­un­blað­inu í morgun að kjara­samn­ingar við lækna og fram­halds­skóla­kenn­ara geti ekki gefið for­dæmi fyrir þá kjara­samn­inga sem framundan væru á vinnu­mark­aði. Samn­ing­arnir við lækna og fram­halds­skóla­kenn­ara séu til lengri tíma, og að í þeim felist einnig veru­legar breyt­ingar á vinnu­fyr­ir­komu­lagi og launa­upp­bygg­ingu. Þegar að kæmi að samn­ingum á almennum vinnu­mark­aði væri um að ræða skamm­tíma­samn­inga.

Auglýsing

Þá kemur fram í grein for­sæt­is­ráð­herra að góður árangur hafi náðst að und­an­förnu þegar kæmi að upp­bygg­ingu kaup­máttar launa, en hann mæld­ist hærri í nóv­em­ber síð­ast­liðnum en nokkru sinni áður.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None