Hreyfingarleysi veldur tvöfalt fleiri dauðsföllum en offita

hlaup_vef.jpg
Auglýsing

Tvö­falt fleiri deyja af völdum hreyf­ing­ar­leysis en af völdum offitu, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar rann­sóknar sem unnin var við Cambridge-há­skóla og birt­ist í Amer­ican Journal of Clin­ical Nut­rition í vik­unni. Sam­kvæmt rann­sókn­inni getur 20 mín­útna göngutúr á hverjum degi dregið stór­lega úr hættu á ótíma­bæru dauðs­falli.

Til að mæla tengsl milli hreyf­ing­ar­leysis og ótíma­bærra dauðs­falla, sem og hvernig offita teng­ist hvoru tveggja, voru gögn um 334.151 karla og konur í Evr­ópu skoð­uð. Á tólf ára tíma­bili voru hæð, þyngd og ummál mittis mæld og þá var fólk látið meta hversu mikla hreyf­ingu það fékk.

Sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar var mun­ur­inn mest­ur þegar þeir sem hreyfa sig ekk­ert voru bornir saman við þá sem hreyfa sig frekar lít­ið. Rann­sak­endur meta það sem svo að með því að hreyfa sig sem nemur 20 mín­útna göngutúr á dag, sem brennir á bil­inu 90 til 110 kalor­íum, sé hægt að minnka líkur á ótíma­bærum dauða um 16 til 30 pró­sent. Með göngut­úrnum fær­ist fólk úr algjöru hreyf­ing­ar­leysi í næsta hóp, þann sem hreyfir sig frekar lít­ið.

Auglýsing

676 dauðs­föll rakin til hreyf­ing­ar­leysis



Höf­undar rann­sókn­ar­innar not­uðu einnig nýj­ustu tölur um dauðs­föll í Evr­ópu. Þeir telja að 337 þús­und af 9,2 milljón dauðs­föllum meðal Evr­ópu­búa orsak­ist af offitu, það er að fólk hafi verið með BMI stuðul yfir 30. Aftur á móti telja þeir að tvö­falt fleiri eða 676 þús­und dauðs­föll megi rekja til hreyf­ing­ar­leys­is.

„Þetta eru ein­föld skila­boð: smá hreyf­ing á hverjum degi gæti haft umtals­verð áhrif á heilsu þeirra sem hreyfa sig ekk­ert. Jafn­vel þó við höfum kom­ist að því að aðeins 20 mín­útur myndu breyta ýmsu, þá ættum við að horfa til þess að gera meira – það er sannað að hreyf­ing hefur mikla heilsu­bót í för með sér og ætti að vera mik­il­vægur hluti af dag­legu líf­i,“ segir Ulf Ekelund pró­fessor sem leiddi rann­sókn­ina í við­tali við Sci­ence Daily. Nick Wareham pró­fessor bætir því við að auð­veld­ara geti verið að fá fólk til að stunda hreyf­ingu af þessu tagi en að fá of feita til þess að létt­ast mik­ið. Þó eigi áfram að stefna að því fækka of feitu fólki.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None