HS Orka getur ekki tekið þátt í stóriðjuverkefnum - Föst í samningi við óbyggt álver í Helguvík

hsorka.jpg
Auglýsing

HS Orka getur hvorki selt raf­magn sem fyr­ir­tækið fram­leiðir eða nýtt virkj­ana­kosti í nýt­ing­ar­flokki til að búa til nýtt raf­magn til orku­frekra verk­efna sökum þess að það er bundið í orku­sölu­samn­ingi vegna álvers í Helgu­vík. HS Orka vill vera þátt­tak­andi í orku­frekum verk­efnum sem til standa á Íslandi en getur það ekki á meðan að Helgu­vík­ur­samn­ing­ur­inn er í gildi. Þetta er haft eftir Ásgeiri Mar­geirs­syni, for­stjóra HS Orku, í Frétta­blað­inu í dag.

Kjarn­inn greindi frá því í ágúst 2014 að HS Orka hefði hafið gerð­ar­dóms­ferli til að losna undan orku­sölu­samn­ingum sem fyr­ir­tækið und­ir­rit­aði við Norð­urál í apríl 2007 vegna fyr­ir­hug­aðs álvers í Helgu­vík. Vinni HS Orka málið má telj­ast full­víst að álver Norð­ur­áls í Helgu­vík sé end­an­lega úr sög­unn­i. ­Máls­rök voru þau að ákvæði orku­sölu­samn­ings­ins hafi ekki verið upp­fyllt og þar með sé hann ekki lengur í gildi. Norð­urál telur þetta ekki rétt og ætlar að taka til varna. Nið­ur­staða í gerða­dóms­mál­inu á að liggja fyrir sum­arið 2016. Þangað til gerir HS Orka lít­ið.

Orka bundin í óbyggðu álveri



Ás­geir segir við Frétta­blaðið að vilji að "sjálf­sögðu selja orku eins og unnt er, Norð­ur­áli eða öðrum, en staðan er sú að HS Orka gerði samn­ing við Norð­urál Helgu­vík um umtals­vert mikla orku og uppi er ágrein­ingur um þýð­ingu hans í dag, nú þegar álverið er hvergi nærri byggt og ekki unnt að afhenda orku þang­að."

Orku­sölu­samn­ing­ur­inn sem um ræðir er upp á 150 MW af orku. HS Orka getur ekki selt þá orku til ann­ars kaup­anda á meðan að hann er í gildi. Í dag, sjö árum eftir að samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­að­ur, er fyr­ir­tækið því bundið inni í sam­komu­lagi með þorra þeirrar orku sem það telur sig geta fram­leitt og selt í nán­ustu fram­tíð sem virð­ist ekk­ert vera að fara að verða að veru­leika.

Auglýsing

Hafa áður farið fyrir gerð­ar­dóm



Þetta er ekki í eina ­skiptið sem Norð­urál og HS Orka hafa farið fyrir gerð­ar­dóm. Norð­urál stefndi orku­fyr­ir­tæk­inu fyrir slíkan í Sví­þjóð árið 2010. Nið­ur­staða hans, sem var kunn­gjörð í des­em­ber 2011, var sú að orku­sölu­samn­ing­ur­inn ætti að standa en að hann verði að skila HS Orku við­un­andi arð­semi, sem er sér­stak­lega skil­greind í nið­ur­stöð­unni. Þá hafn­aði gerð­ar­dóm­ur­inn skaða­bóta­kröfu Norð­ur­áls á hendur HS Orku vegna van­efnda á samn­ingn­um.

Í raun gátu báðir deilu­að­ilar tekið eitt­hvað jákvætt út úr þeirri nið­ur­stöðu. HS Orka var ekki skuld­bundið til að selja orku á verði sem skil­aði fyr­ir­tæk­inu ekki arð­semi og Norð­urál hélt þeim orku­sölu­samn­ing sem var því mik­il­vægastur til að halda von­inni um álver í Helgu­vík lif­andi.

Mich­ael Bless vildi Lands­virkjun í leið­toga­hlut­verk



Norð­urál hefur hug á að byggja álver í Helgu­vík í fjórum áföng­um. 150 MW af orku þarf í hvern áfanga og Norð­urál hefur lýst því yfir að álverið verði ekki klárað nema að búið sé að tryggja orku fyrir tvo áfanga, alls 300 MW. Helm­ingur þess átti því að koma frá HS Orku. Ekki hefur tek­ist að tryggja þá við­bót­ar­orku sem til þarf og lágt heims­mark­aðs­verð á áli á und­an­förnum árum hefur ekki skapað mik­inn hvata til þess að ráð­ast í að klára Helgu­vík­ur­verk­efn­ið.

Mich­ael Bless, for­stjóri Cent­ury Alu­m­inum, var spurður út í Helgu­vík­ur­ál­verið á fundi með fjár­festum í til­efni af hálfs­árs­upp­gjöri fyr­ir­tæk­is­ins í júlí 2014. Þar sagði hann að það væri engin breyt­ing á stöðu verk­efn­is­ins á milli árs­fjórð­unga. „Það sem við virki­lega þurfum er að rík­is­orku­fyr­ir­tæk­ið, Lands­virkj­un, standi upp í leið­toga­hlut­verk í þessu verk­efni ef við ætlum að koma hlut­unum í gang í náinni fram­tíð“.

Póli­tískur þrýst­ingur á Lands­virkjun



Tölu­verður póli­tískur þrýst­ingur hefur verið á Lands­virkjun að koma að Helgu­vík­ur­verk­efn­inu. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­rá­herra sendi Herði Arn­ar­syni, for­stjóra Lands­virkj­unn­ar, til að mynda harð­orð skila­boð á haust­fundi fyr­ir­tæk­is­ins í nóv­em­ber í 2013 um að hún væri „orðin ansi óþreyju­full og ég vil fara að sjá árangur og að verk­efnin verði að veru­leika. Tæki­færin eru svo sann­ar­lega til stað­ar. Ég get nefnt álverið í Helgu­vík, fram­kvæmd sem ekki bara mun skipta Suð­ur­nesja­menn máli heldur lands­menn alla og hefur beðið allt of leng­i“.

Hörður svar­að­i því til að Lands­virkjun geti ekki ann­ast orku­öflun fyrir álverið í Helgu­vík nema að litlu leyti. Sú orka sem Lands­virkjun hefur að bjóða í verk­efnið er ein­ungis á bil­inu 50 til 100 MW og því dropi í hafið af því sem til þarf.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None