Huang Nubo hættir við stórtæk jarðakaup í Norður-Noregi

Huang-Nubo.-Chairman.-Zhongkun-Investment-Group.-at-the-2012-Global-China-Business-Meeting-.8229212059.jpg
Auglýsing

Ekk­ert verður af fyr­ir­hug­uðum kaupum kín­verska fjár­fest­is­ins Huang Nubo á 100 hekt­ara jörð í Norð­ur­-Nor­egi, að því er fram kemur í frétt norska vef­mið­ils­ins Nor­d24.

Norskir fjöl­miðlar greindu frá því í maí í fyrra að norski fjár­festir­inn og flug­stjór­inn Oli O.K. Giæver Jr. hefði selt kín­verska auð­kýf­ingnum og kaup­sýslu­mann­inum 100 hekt­ara jörð í Seljevik í Lyngen. Nú er haft eftir norska fjár­fest­inum að ekk­ert hafi orðið af söl­unni og hún muni ekki ganga eftir „á meðan Norð­menn og Kín­verjar leysa ekki úr málum sín á milli.“ Giæver kennir sem sagt slæmum sam­skiptum Nor­egs og Kína um ákvörðun Huang að draga sig út úr jarða­kaup­un­um.

Kína og Nor­egur hafa eldað grátt silfur saman síðan að norska nóbels­nefndin lagði til árið 2010 að kín­verski and­ófs­mað­ur­inn Liu Xia­obo yrði sæmdur frið­ar­verð­launum Nóbels.

Auglýsing

Umdeildur fjár­festir



Aðspurður neitar Giæver að norsk stjórn­völd hafi haft afskipti af við­skipt­un­um, en þegar hann var spurður hvort kín­versk stjórn­völd hafi komið í veg fyrir þau svar­aði hann blaðmanni Nor­d24: „Ég veit það eitt að Kín­verjar ráð­ast ekki í neinar fjár­fest­ingar fyrr en Nor­egur og Kín­verjar lappa upp á sam­skipti sín á milli.“

(Frá vinstri) Huang Nubo, Kurt Arild Hansen ráðgjafi g Ola O.K. Giæver. Norðmennirnir heimsóttu Huang til Peking. (Frá vinstri) Huang Nubo, Kurt Arild Han­sen ráð­gjafi g Ola O.K. Giæver. Norð­menn­irnir heim­sóttu Huang til Pek­ing.

Svæðið sem Huang Nubo hugð­ist kaupa í Seljevik er skipu­lagt undir frí­stunda­byggð og leigu­starf­semi sam­kvæmt svæð­is­skipu­lagi Lyngen. Huang hafði uppi áform um að byggja hótel og reka stór­fellda ferða­þjón­ustu á svæð­inu, en fyr­ir­huguð jarða­kaup hans á Íslandi og Sval­barða hafa vakið athygli á heims­vísu. Þá hafa félög Huangs í Kína sætt opin­berri rann­sókn þar í landi vegna umfangs­mik­illa svika­mála sem hefur sömu­leiðis vakið athygl­i. Kjarn­inn greindi frá rann­sókn kín­verskra stjórn­valda á félögum Huang í októ­ber.

Miklar vænt­ingar til Huang Nubo



Norski fjár­festir­inn, sem ætl­aði að selja Huang jörð­ina í Seljevik, sem og for­seti bæj­ar­stjórnar í Lyn­gen höfð­u ­miklar vænt­ingar til áforma Kín­verj­ans á svæð­inu og sögðu í fjöl­miðlum að upp­bygg­ingin yrði mikil lyfti­stöng fyrir Seljevik.

Hug­myndin að við­skipt­unum kvikn­aði eftir að sendi­herra Kína heim­sótti Giæver-­fjöl­skyld­una í októ­ber árið 2013. Þá sagði fjár­festir­inn sendi­herr­anum að hann ætti jörð sem búið væri að skipu­leggja og væri til sölu, og þá kom sendi­herr­ann Giæver í sam­band við Huang Nubo.

Selja­vik er 3,5 kíló­metra frá Lyngseið­inu (Lyngseidet) og er í eins og hálfs klukku­tíma akst­ur­fjar­lægð frá Tromsø.

Frá Seljevik.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None