Hvað þarf tónlistarmaður margar spilanir á Spotify til að þéna lágmarkslaun?

9952748465_fbe9a7672f_z.jpg
Auglýsing

Hefur þú velt fyrir þér hvað tón­list­ar­menn fá í sinn hlut fyrir spil­anir í helstu tón­list­ar­veitum og sölu á lögum í helstu staf­rænu tón­list­ar­versl­unum nútím­ans, nú þegar fólk virð­ist flest vera hætt að kaupa plöt­ur? Hvað þurfa þeir að selja mörg ein­tök eða fá margar hlust­anir til að þéna banda­rísk lág­marks­laun?

Ef þeir gefa plöt­una sína út á eigin vegum nægir að selja 105 ein­tök. Ef þeir eru með plötu­samn­ing við útgef­anda og selja lögin sín í gegnum helstu staf­rænu tón­list­ar­versl­anir netheima á borð við iTu­nes þá þurfa þeir 11.354 nið­ur­höl til að ná lág­marks­laun­um. Þeir tón­list­ar­menn sem eru á samn­ingi hjá útgáfu, og láta hana hafa góðan hluta af tekjum sínum vegna streymis á tón­list sinni, þurfa að fá yfir eina milljón spil­anir á mán­uði hjá veitum eins og Deezer og Spotify til að ná banda­rískum lág­marks­laun­um.

Þetta kemur fram í nýrri gagna­skýr­ingu David McCandless sem greint er frá í The Guar­dian. McCandless gerði sam­bæri­lega skýr­ingu árið 2010 sem olli tölu­verðu upp­nám innan tón­list­ar­geirans.

Auglýsing

Gagnaskýringin sem birtist á vef The Guardian. Gagna­skýr­ingin sem birt­ist á vef The Guar­di­an.

Í skýr­ing­unni sinni fer McCandless yfir tölu­legar stað­reyndir ýmissa tón­list­ar­fyr­ir­tækja og –veita og sýnir út frá gögnum hvað lista­menn geta átt von á að fá í sinn hlut vegna spil­anna á lögum sínum hjá við­kom­andi fyr­ir­tækj­um. Í skýr­ing­unni er farið yfir stöð­una hjá Bandcamp, iTu­nes, Amazon, sem selja tón­list, og hjá tón­list­ar­veit­unum Spoti­fy, Deez­er, Beats Music, Rhapsody, YouTube og Tidal.

Sam­hliða því að reikna út hvað tón­list­ar­maður geti átt von á að fá fyrir hverja ein­staka spilum þá reiknar McCandless út hversu margar sölur eða mörg streymi hann þarf til að þéna lög­bundin lág­marks­laun í Banda­ríkj­un­um. Þau eru 1.260 dalir á mán­uði, eða 173.174 krón­ur. Töl­urnar inni­halda ekki höf­und­ar­rétt­ar­greiðslur fyrir að semja lögin en reikna út hver með­a­tals­greiðsla þeirra tón­list­ar­manna sem eru með samn­inga við útgáfu­fyr­ir­tæki. Spotify segir til að mynda að greiðsla til útgef­anda fyrir hvert streymi sé á bil­inu 0,006 og 0,0084 dal­ir, 0,8 til 1,15 krón­ur. Sam­kvæmt grein­ingu McCandless er með­al­tals­greiðsla útgef­enda til tón­list­ar­manna ein­ungis brot af þeirri þó lágu upp­hæð, eða 0,001128 dal­ir, tæp­lega 0,16 krón­ur.

Tekið er fram í grein The Guar­dian að það að horfa ein­ungis á greiðslu fyrir hverja hverja spilun geti verið mis­vísandi því það er mik­ill munur á þvi hversu margir eru að nota hverja veitu eða þjón­ustu fyrir sig. Beats borgar til að mynda meira á hverja spilun en Spotify en miklu, miklu fleiri nota Spotify en Beats. Því skilar Spotify tón­list­ar­mönnum meiri tekjur en Beats. Ef not­enda­fjöldi Beats eykst gerir við­skipta­módel veit­unnar ráð fyrir því að greiðslur á hvert streymi lækki.

Upp­lýs­inga­graf McCandless er því ekki sönnun fyrir því að ein þjón­usta sé betri en önnur fyrir tón­list­ar­menn­ina.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None