Hvernig færðu Foo Fighters til að spila í þorpinu þínu?

rock1000.jpg
Auglýsing

Jú, maður setur bara heims­met. Ítali að nafni Fabio Zaffagn­ini fékk þessa hug­mynd fyrir rúmu ári síð­an. Hann lang­aði að sjá upp­á­halds hljóm­sveit­ina sína spila í heimabæ sínum Ces­ena í Romagna í Norð­ur­-Ítalíu og velti fyrir sér hvernig hann færi að því. Svarið var að búa til heims­ins stærstu rokk­hljóm­sveit.

Foo Fighters spil­uðu síð­ast í Romagna árið 1997 þegar hún fylgdi ann­ari breið­skífu sinni eft­ir; The Color And Shape. Síðan hefur hljóm­sveit­inni vaxið ásmeg­inn, og for­sprakk­inn Dave Grohl orð­inn að einni stærstu rokk­stjörnu í heimi.

Zaffagn­ini hóaði í vini sína sem hopp­uðu á vagn­inn. Saman héldu þau svo áheyrn­arprufur til að skipa þús­und manna hljóm­sveit sem mundi spila eitt lag með Foo Fighters, taka það upp á mynd­band og senda hljóm­sveit­inni. Til að fá fólk í lið með sér sendu þau mynd­bandið hér að neðan á vef­inn í vet­ur.

Auglýsing

https://vi­meo.com/115166028

Verk­efnið fékk fljót­lega mikla athygli, ekki aðeins á Ítalíu heldur um allan heim. Stærstu tón­list­ar­tíma­rit í heimi fjöll­uðu um þessa til­raun svo hóp­fjár­mögnun verk­efn­is­ins gekk smurt fyrir sig. Í kjöl­farið gátu þau svo ráðið hljóm­sveit­ar­stjór­ann Marco Sabiu til liðs við verk­efnið en sá hefur unnið með mörgum af þekkt­ustu tón­list­ar­mönnum í heimi, til dæmis Luci­ano Pavarotti svo ein­hver sé nefnd­ur.

Tækni­leg útfærsla þess­ara stuttu en risa­stóru tón­leika var ekki síður flókin og þurfti reynda tækni­menn til að koma þessu heim og sam­an. Flestir unnu frítt eða fyrir mjög lágar fjár­hæðir enda hafði Zaffagn­ini aldrei dottið í hug að hug­myndin hans næði svo langt.

Það var svo 26. júlí síð­ast­lið­inn sem þús­und manna hljóm­sveit spil­aði á stóru túni í Ces­ena Foo Fighter­s-lagið Learn to Fly undir stjórn Sabiu. Mynd­band­inu var svo dreift á vefnum í dag. Nú er bara að bíða og sjá hvort Dave Grohl og félagar svari kall­inu. Hér að neðan má sjá tón­leik­ana í heild sinni.

https://yout­u.be/JozAmXo2bDE

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None