Hvorki verslunin né mjólkurframleiðendur eru að hugsa um hag neytenda

bonuss.jpg
Auglýsing

Við Íslend­ingar eigum nokkrar deilur sem teygja sig ára­tugi aftur í tíma. Ein þeirra er um gagn­sem­iog gæð­i þess land­bún­að­ar­kerfis sem við rek­um.

Nýverið hefur verið tölu­verð harka í þeirri deilu, í kjöl­far ákvörð­unar verð­lags­nefndar búvöru - sem er alvöru fyr­ir­bæri með mikil völd - um að verð á mjólk­ur­vörum ætti að hækka. Á meðal þeirra sem hafa látið í sér heyra er Finnur Árna­son, for­stjóri smá­söluris­ans Haga, sem var með 48 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á íslenska dag­vöru­mark­aðnum í fyrra.

Finnur skrif­aði  grein í Frétta­blaðið fyrr í vik­unni þar sem hann sagði hækkun verð­lags­nefnd­ar­innar á smjöri óskilj­an­lega, van­hugs­aða og óábyrga. Hún sé rúm­lega þre­föld hækkun á vísi­tölu neyslu­verðs og mun hækk­unin því valda verð­bólgu. Það muni leiða til þess að neyt­endur borgi mun hærra verð fyrir smjör auk þess sem verð­tryggð lán heim­ila hækka.

Auglýsing

Sig­ur­geir Sindri Sig­ur­geirs­son, for­maður Bænda­sam­taka Íslands, svar­aði Finni á sama vett­vangi á fimmtu­dag. Þar bendir hann meðal ann­ars á að Hagar hafi hagn­ast um 3,8 millj­arða króna á síð­asta rekstr­ar­ári og því hafi fyr­ir­tækið svig­rúm til þess að setja hækkun á mjólk­ur­vörum ekki út í verð­lag­ið. Sig­ur­geir sagði Finn einnig mega að spyrja sig að því „hvers vegna smjör hækk­aði um 5,8% í smá­sölu frá því í októ­ber 2013 og fram í júlí á þessu ári, en þá var engin hækkun á heild­sölu­verð­in­u[...]Hann er því fyr­ir­fram búinn að rukka fyrir helm­ing­inn af þeirri 11,6% hækkun sem verður 1. ágúst.“

Í nið­ur­lagi greinar Sig­ur­geirs seg­ir: „For­stjóra Haga er ætlað að gæta hags­muna fyr­ir­tæk­is­ins. Það er eðli­legt og honum hefur tek­ist ágæt­lega upp. En hann er ekki og mun aldrei verða tals­maður neyt­enda“.

Þetta eru orð að sönnu hjá Sig­ur­geiri. En sömu sögu má segja um hann sjálfan, ef mið er tekið af skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um mjólk­ur­vöru­fram­leiðslu á Íslandi sem birt var í júní. Þar kom fram að íslenska ríkið og eig­endur þess, íslenskir neyt­end­ur, þurfa að borga um átta millj­örðum krónum meira fyrir fram­leiðslu á mjólk á ári en ef mjólkin væri ein­fald­lega flutt inn.

Það ætti því að blasa við að í þeim deilum sem eiga sér stað á milli hags­muna­að­ila í verslun og fram­leiðslu eru sér­hags­munir í aðal­hlut­verki hjá þeim sem takast á. Hvor­ugur þeirra getur með réttu kallað sig „tals­mann neyt­enda“ þar sem báðir byggja afkomu sína á því að græða sem mest á þeim.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None