Í Danmörku má ekki selja hnífa sem hægt er að opna með annarri hendi

Pocket.knife_London.jpg
Auglýsing

Allir hafa heyrt Hauk Morthens syngja um hann Bjössa á mjólk­ur­bílnum sem ók eins og ljón, með aðra hönd á stýri (og steig bens­ínið í botn á fyrsta gíri). Engum sögum fer af því hvort Bjössi var með vasa­hníf en ef hann væri að aka um með brús­ana, og vasa­hníf í Dan­mörku í dag væri viss­ara fyrir hann að vara sig, lög­reglan myndi lík­lega taka af honum hníf­inn og kæra kaup­mann­inn sem seldi honum hann.

Fyrir tveimur dögum var kveð­inn upp dómur í bæj­ar­rétt­inum í Óðins­vé­um. Þar var kaup­maður sem á og rekur litla verslun með ýmis konar vörur fyrir sport­veiði­menn sektaður um 100 þús­und krónur (tæpar 2 millj­ónir íslenskar krón­ur) fyrir að hafa í verslun sinni 44 ólög­lega vasa­hnífa. Kaup­mað­ur­inn, sem er gam­all í hett­unni, sagði fyrir rétt­inum að hann hefði selt svona hnífa í ára­tugi og kvaðst ekki vita hvað væri nú breytt.

Dóm­ar­inn sagð­ist fylgja lögum



Dóm­ar­inn sagði kaup­mann­inum að það gæti vel verið en lögin kvæðu ein­fald­lega á um að ólög­legt væri að selja hnífa sem hægt væri að opna með annarri hendi. Kaup­mað­ur­inn spurði hvort þetta væru ný lög en fékk þau svör að svo væri ekki. Þá spurði kaup­mað­ur­inn dóm­ar­ann hvort hann treysti sér til að opna einn af hníf­unum sem lágu á dóm­ara­borð­inu. Dóm­ar­inn sagði að það væri ekki til umræðu hér hversu leik­inn hann væri með slíkt áhald.

Lögin segi að ef nokkur mögu­leiki sé á að hægt sé að opna hníf með annarri hendi sé sá hnífur ólög­leg­ur. Punktur og basta.

Auglýsing

Sam­tök danskra veiði­manna hafa harð­lega mót­mælt þessum dómi og öðrum svip­uðum sem féll fyrir skömmu. Í næstu viku verður svo dæmt í þriðja hnífa­mál­inu en sá kaup­maður sem þar á í hlut neitar að borga sekt (sem búið var að dæma hann í) fyrir að hafa 65 hnífa til sölu. Seg­ist frekar sitja af sér í grjót­inu en borga.

Stjórn­mála­menn vilja breyta lög­unum



Kosn­ingar nálg­ast hér í Dan­mörku og eins og títt er við slíkar aðstæður vilja fram­bjóð­endur gera ýmis­legt til að öðl­ast hylli kjós­enda. Danska rík­is­út­varp­ið, DR, ræddi við átta þing­menn í dag, þeir ætla allir í fram­boð og voru allir sam­mála um að þessi hnífalög (sem þeir settu sjálfir) væru alveg út í hött.

Það hefði aldrei verið ætl­unin að koma í veg fyrir að fólk gæti gengið með vasa­hníf á sér. Þing­menn­irnir lof­uðu líka allir sem einn að þessum ólögum yrði breytt strax á næsta þingi, ef þeir fengju nokkru ráð­ið.

Dúka­hnífar og fjöl­nota­verk­færi líka ólög­leg



Nokkrar bygg­inga­vöru­versl­anir og stór­mark­aðir hafa þegar brugð­ist við og fjar­lægt hnífa úr hill­un­um. Það gildir um alla hnífa sem nokkur minnsti mögu­leiki er að hægt sé að opna með annarri hendi. Undir þetta falla meðal ann­ars dúka­hnífar og hin svoköll­uðu fjöl­nota­verk­færi, þar sem hnífur er meðal áhalda.

Eig­andi einnar bygg­inga­vöru­versl­unar sagð­ist vera með 1500 dúka­hnífa á lag­ern­um. „Ég færi á haus­inn ef ég fengi svip­aða sekt og kaup­mað­ur­inn sem var með 44 vasa­hnifa til sölu,“ sagði þessi kaup­mað­ur. Ekki liggur ljóst fyrir hvort dúka­hnifur er hnífur eða verk­færi í lag­anna skiln­ingi.

Má selja til „við­ur­kenndra“ not­enda



Lögin segja að hnífa, sem hægt sé að opna með annarri hendi, megi selja til við­ur­kenndra not­enda. Kaup­menn segja úti­lokað að meta hverjir séu við­ur­kenndir not­endur og þeir geti ekki krafið við­skipta­vini um slík sönn­un­ar­gögn og eng­inn viti hver þau ættu að vera.

Áður­nefndur kaup­maður ráð­lagði frétta­manni sem við hann ræddi að ef hann ætti gamlan vasa- eða dúka­hníf skyldi hann ekki henda hon­um. „Það er ekki víst að þú frétta­mað­ur­inn verðir tal­inn við­ur­kenndur not­and­i,“ sagði hann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None