Í lok árs í fyrra bjuggu 329.040 á Íslandi

15377255413_ac2fdd3f81_z.jpg
Auglýsing

Í lok árs í fyrra 2014 bjuggu 329.040 manns á Íslandi, 165.150 karlar og 163.890 kon­ur, sam­kvæmt upp­lýs­ingum um mann­fjölda sem Hag­stofa Íslands birti í morg­un. Lands­mönnum fjölg­aði um 870 á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins í fyrra. Af heild­ar­fjölda lands­manna bjugg­u 211.230 manns á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en 117.820 utan höf­uð­borg­ar­svæð­is.

Á fjórða árs­fjórð­ungi 2014 fædd­ust 1.080 börn, en 520 ein­stak­lingar lét­ust. Á sama tíma flutt­ust 320 ein­stak­lingar til lands­ins umfram brott­flutta, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Hag­stof­unn­ar. „Brott­fluttir ein­stak­lingar með íslenskt rík­is­fang voru 160 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar voru 480 fleiri en þeir sem flutt­ust frá land­inu. Fleiri karlar en konur flutt­ust frá land­in­u,“ segir í frétt Hag­stof­unn­ar.

Auglýsing


Nor­egur var helsti áfanga­staður brott­fluttra íslenskra rík­is­borg­ara en þangað flutt­ust 190 manns á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins. Til Dan­merk­ur, Nor­egs og Sví­þjóðar flutt­ust 380 íslenskir rík­is­borg­arar af 630 alls. Af þeim 610 erlendu rík­is­borg­urum sem flutt­ust frá land­inu fóru flestir til Pól­lands, 190 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir rík­is­borg­arar komu frá Dan­mörku (140), Nor­egi (130) og Sví­þjóð (70), sam­tals 330 manns af 470. Pól­land var upp­runa­land flestra erlendra rík­is­borg­ara en þaðan flutt­ust 400 til lands­ins af alls 1.080 erlendum inn­flytj­end­um. Í lok fjórða árs­fjórð­ungs bjuggu 24.230 erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi.































































































































Mann­fjöldi, fæð­ing­ar, and­lát og búferla­flutn­ingar á 4. árs­fjórð­ungi 2014  
  Alls Karlar Konur
Mann­fjöld­inn í lok árs­fjórð­ungs 329.040 165.150 163.890
Mann­fjöld­inn í upp­hafi árs­fjórð­ungs 328.170 164.710 163.460
Breyt­ing 870 440 440
Fæddir 1.080 540 540
Dánir 520 280 240
Aðfluttir umfram brott­flutta 320 170 140
Aðfluttir 1.560 860 690
Brott­fluttir 1.240 690 550
Allar tölur eru námund­aðar að næsta tug ef mann­fjöld­inn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í sam­tölur vegna námund­un­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None