Illugi svarar ekki spurningum um greiðslur til OG Capital

illugi
Auglýsing

Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hef­ur ekki viljað svara spurn­ingum Kjarn­ans um hvort félag sem hann átti, OG Capital, hafi fengið greiðslur frá Orku Energy á árunum 2011 og 2012. Kjarn­inn send­i ­fyr­ir­spurn til ráð­herr­ans í kjöl­far þess að hann opin­ber­aði skatt­fram­tal sitt á Face­book í byrjun mán­að­ar, sem hann sagði að sýndi að engar fleiri ­launa­greiðslur hefðu borist til hans frá Orku Energy. Fjöl­mið­il­inn Stundin birt­i í kjöl­farið frétt þar sem því var haldið fram að þótt Ill­ugi hafi ekki feng­ið frek­ari laun frá Orku Energy hafi félag í hans eigu fengið greiðslur það­an ­síðla árs 2012.

Fyr­ir­spurn Kjarn­ans var ein­föld: fékk félagið OG Capital, ­sem þá var í eigu Ill­uga, greiðslur frá Orku Energy á árunum 2011 eða 2012, og ef svo var hversu háar voru þær greiðsl­ur?

Auglýsing

Í svari sem barst frá Ill­uga, í gegnum aðstoð­ar­mann hans Sig­ríð­i Hall­gríms­dótt­ir, þann 15. októ­ber síð­ast­lið­inn sagði: „Ég hef birt og gert grein fyrir öllum upp­lýs­ingum er varða ­tekjur mínar vegna ráð­gjaf­ar­starfa fyrir Orku Energy. Eins og skatt­skýrsl­ur mínar og eig­in­konu minnar frá árunum 2012 og 2013 sýna, er ein­ungis um eina ­launa­greiðslu að ræða frá Orku Energy. Þetta eru einu tekj­urnar sem ég hef haft frá Orku Energy fyrr og síð­ar. Hvað OG Capi­tal varð­ar, þá fékk ég engin laun eða arð frá því félagi, hvorki fyrr né síð­ar, sem áttu upp­runa sinn hjá Orku Energy.   



Ég hef nú opin­berað allt sem hægt er að op­in­bera um tekjur mínar og reyndar líka Bryn­hildar kon­unnar minn­ar, á þessum ár­um. Það er ekk­ert eftir til að opin­bera eða svara“.

Í svari sínu seg­ist Ill­ug­i ekki hafa fengið laun eða arð frá OG Capi­tal. Hann svarar því hins vegar ekki hvort OG Capi­tal hafi fengið greiðslur frá Orku Energy á árunum 2011 eða 2012. Kjarn­inn hefur ítrekað óskað eftir því að ráð­herr­ann svari þeim spurn­ingum sem til hans var beint. Við þeirri beiðni hefur ekki verið orð­ið.

Birti skatt­fram­tal sitt á Face­book

Ill­ugi Gunn­ars­son hefur verið gagn­rýndur víða fyrir tengsl sín við Orku Energy, ekki síst vegna heim­sóknar til Kína í vor þar sem full­trúar frá Orku Energy voru líka, en Illugi starf­aði fyrir fyr­ir­tækið árið 2011 auk þess sem hann hefur greint frá­ því að stjórn­ar­for­maður þess Haukur Harð­ar­son hafi keypt íbúð hans vegna fjár­hags­vand­ræða. Ill­ugi og fjöl­skylda leigja nú íbúð­ina aftur af Hauki.

Áður en að Hauk­ur keypti íbúð Ill­uga var hún færð inn í félagið OG Capital, sama félag og Stund­in ­segir að Ill­ugi hafa fengið greiðslur inn í. Haukur keypti síðan félagið með­ öllum eignum þess í lok árs 2013.

Ill­ugi hefur sagt opin­ber­lega að hann hafi aðeins fengið 5,6 millj­óna launa­greiðsl­una frá Orku Energy og að sú greiðsla hafi verið vegna vinnu sem hann vann árið 2011. Hann birti launa­seð­il s­inn vegna greiðsl­unnar í fréttum Stöðvar 2 í byrjun októ­ber.

Eftir birt­ingu skatt­fram­tals­ins greindi Stund­in hins vegar frá að mið­ill­inn hefði heim­ildir fyrir því að eign­ar­halds­fé­lag sem þá var í eigu Ill­uga, OG Capital, hefði fengið 1,2 milljón króna greiðslu frá­ Orku Energy síðla árs 2012. Í kjöl­farið birti Ill­ugi skatt­fram­tal sitt og eig­in­konu sinnar vegna áranna 2012 og 2013 á Face­book og sagði það sýna að engar launa­greiðsl­ur, arð­greiðslur eða aðrar greiðslur hefðu komið til hans eða eig­in­konu hans á árinu 2012 eða 2013.  

Ill­ugi svar­aði því hins vegar ekki í stöðu­upp­færsl­unni hvort OG Capi­tal hefði fengið umrædda greiðslu síðla árs 2012.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None