Ísing kann að hafa grandað þotu AirAsia

000_Hkg10133292.jpg
Auglýsing

Slæmt veður er talið hafa grandað Air­bus-far­þega­þotu AirAsia á Java­hafi fyrir réttri viku síð­an. Indónesísk yfir­völd hafa greint fyr­ir­liggj­andi gögn og kom­ist að nið­ur­stöðu um að veð­ur­skil­yrði hafi hratt af stað atburða­rás sem end­aði með því að þot­an ­fórst með alla 162 far­þega sína.

Aðstæður til leitar þar sem þotan er talin hafa hrapað í hafið eru slæmar og hefur það hamlað allri frek­ari leit að líkum far­þega og flaki vél­ar­inn­ar. Yfir­völd í Indónesíu hafa jafn­framt greint frá því að nú, viku eftir slysið, sé erfitt að bera kennsl á lík far­þeg­anna eftir volkið í haf­inu.

Mikið kapp er einnig lagt í að finna flug­rita vél­ar­innar til að fá nákvæmar upp­lýs­ingar um hvað átti sér stað um borð í vél­inni áður en hún skall í haf­ið. AFP-frétta­stofan greinir frá þessu.

Auglýsing

https://www.youtu­be.com/watch?v=1Bk­gG2aK­FP8

Flaug inn í 85 gráðu frost



Far­þega­þotan tók á loft frá Sura­baya, næst stærstu borg Indónesíu, sunnu­dag­inn 28. des­em­ber og hafði flogið í fáeinar klukku­stundir áleiðis til Singapúr þegar sam­band við vél­ina rofn­aði. Fyrstu vís­bend­ingar bentu til þess að vélin hafi flogið inn í óveð­ur.

„Byggt á þeim upp­lýs­ingum sem hefur verið aflað á þeim stað þar sem sam­band rofn­aði við vél­ina er veðrið orsök slyss­ins,“ segir í skýrslu indónesískra yfir­valda. Inn­rauðar gervi­tungla­myndir voru not­aðar til að greina nánar hita­stig skýj­anna sem vélin hefur flogið inn í. Minnsta hita­stig skýj­anna var á bil­inu -80 til -85°c.

„Veðrið hefur því lík­leg­ast skapað ísingu sem getur skemmt vélar þot­unnar vegna mik­illar kæl­ing­ar. Þetta er hins vegar aðeins einn mögu­leiki þess sem gæti hafa gerst byggt á þessum veð­ur­fræði­gögn­um,“ segir enn fremur í skýrsl­unni.

Hjálparsveitir hafa endurheimt hluta af flaki vélarinnar úr hafinu á liðinni viku. Aðgerðin er flókin og erfið enda hafa veðurskilyrði ekki verið góð. Hjálp­ar­sveitir hafa end­ur­heimt hluta af flaki vél­ar­innar úr haf­inu á lið­inni viku. Aðgerðin er flókin og erfið enda hafa veð­ur­skil­yrði ekki verið góð.

Enn er á huldu hvers vegna aðrar far­þega­vélar á sömu slóðum urðu ekki fyrir áhrifum af verð­inu. Rann­sak­endur hafa því lagt áherslu á að finna flug­rita far­þega­þotu AirAsia enda liggja ekki fyrir næg gögn til að segja til um orsök með nægi­legri vissu.

Fimm stórir hlutar vél­ar­innar hafa fund­ist undan ströndum eyj­unnar Born­ero. Fjöldi líka far­þega sem fund­ist hafa er nú 34. Flak vél­ar­innar er talið liggja á sjáv­ar­botni en kaf­arar hafa átt erfitt með að finna nokkuð á svo miklu dýpi vegna lélegra sjón­skil­yrða.

Stað­ur­inn þar sem þotan hvarf af rat­sjám



[goog­le_map width="100%" height="300px" src="https://www.­google.com/maps/em­bed?p­b=!1m14!1m8!1m3!1d8157011.204639039!2d109.6911!3d-3.3708!3m2!1i1024!2i768!4f13.1!3m3!1m2!1s0x0%3A0x0!2zM8KwMj­InMTQuOSJTIDEwOcKwNDEn­Mjg­uMCJF!5e0!3m2!1­sen!2s!4v1420380847320"]

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None